Skautafélag Akureyrar gerði góða ferð til Reykjavíkur og vann 4:2-sigur á Fjölni í Hertz-deild karla í íshokkíi. Með sigrinum fór SA upp í 15 stig og upp að hlið Fjölnis í toppsæti deildarinnar.

Hafþór Sigrúnarson og Jóhann Már Leifsson skoruðu fyrir SA í fyrstu tveimur leikhlutunum. Róbert Hafberg og Sigurður Þorsteinsson komu SA í 4:0 áður en þeir Michal Stoklosa og Hilmar Sverrisson minnkuðu muninn fyrir Fjölni. johanningi@mbl.is