[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Handbolti Bjarni Helgason bjarnih@mbl.

Handbolti

Bjarni Helgason

bjarnih@mbl.is

Valsmenn eru komnir áfram í fjórðu umferð Áskorendabikars Evrópu í handknattleik eftir samanlagðan tíu marka sigur gegn austurríska efstudeildarliðinu Bregenz en báðir leikirnir fóru fram í Rieden Vorkloster-höllinni í Bregenz í Austurríki. Fyrri leik liðanna, hinn 16. nóvember, lauk með 31:31-jafntefli en Valsmenn keyrðu yfir austurríska liðið í seinni leiknum sem fram fór í gær og urðu lokatölur leiksins 31:21, Valsmönnum í vil.

Hreiðar Levy Guðmundson átti stórleik í marki Valsmanna í seinni leiknum og varði alls sextán skot. Hann var afar sáttur við frammistöðu liðsins í leikjunum í Austurríki og telur að í leikjunum tveimur hafi Valsmenn sýnt sína bestu frammistöðu á tímabilinu til þessa. „Ég er ótrúlega ánægður með karakterinn, liðið og spilamennskuna í heild, sérstaklega í seinni leiknum,“ sagði Hreiðar í samtali við Morgunblaðið í gær.

„Við vorum búnir að fara vel yfir þá og það var í raun ekkert í þeirra leik sem kom okkur þannig séð á óvart. Það kom hins vegar á óvart að við skyldum vinna þá með tíu mörkum í seinni leiknum. Þeir virkuðu hálfþreyttir í dag (gær) og við nýttum okkur það bara mjög vel. Við keyrðum vel á þá og refsuðum þeim grimmilega. Þessir tveir leikir okkar gegn þeim voru að mínu mati okkar besta frammistaða til þessa á tímabilinu og vonandi getum við byggt ofan á hana. Við markmennirnir stóðum okkur ekki nægilega vel í fyrri leiknum en við áttum mjög flottan leik í dag (í gær).“

Staðráðinn í að stíga upp

Hreiðar var ósáttur við sína frammistöðu í fyrri leiknum þar sem hann varði tíu skot og var hann staðráðinn í að gera mun betur í seinni leiknum sem hann og gerði en markvarslan var það sem skildi liðin að í tíu marga sigri Valsmanna í gær.

„Þeir skutu dálítið eftir plani, bæði í fyrri leiknum sem og í þeim seinni. Þetta eru góðir skotmenn og það er öðruvísi hraði á skotunum hjá þeim. Þetta eru öðruvísi skyttur en heima á Íslandi en þetta snerist fyrst og fremst um sjálfan mig og ég var í raun staðráðinn í að gera betur í seinni leiknum. Ég tók aðeins á mig þetta jafntefli í fyrri leiknum því strákarnir stóðu sig frábærlega. Ég sagði þeim eftir fyrri leikinn að ef ég og Danni verðum sjö til tíu skot í viðbót myndum við fara áfram úr einvíginu og það gekk eftir. Þetta er sterkt lið sem væri að berjast í efri hluta íslensku úrvalsdeildarinnar. Þetta væri topp-fjórir- topp-fimm-lið heima á Íslandi. Ég bjóst við hörkuleik gegn þeim í dag (gær) og það bjóst enginn við því að klára þá svona sannfærandi, hvað þá í fyrri hálfleik.“

Valsmenn byrjuðu tímabilið illa en liðið var með þrjú stig eftir fyrstu sex umferðirnar. Liðið hefur hins vegar verið að klifra upp töfluna í undanförnum leikjum og hefur nú unnið fjóra leiki í röð í Olísdeildinni.

Háleit markmið fyrir tímabilið

„Við vorum að glíma við ákveðin meiðsli í upphafi tímabilsins en það er góð breidd í hópnum. Auðvitað munar um meiðsli lykilmanna og það myndi hvaða lið sem er finna fyrir þeim, líkt og við höfum gert. Þetta er hins vegar allt að smella saman og ég er mjög bjartsýnn á framhaldið. Það er nefnilega hörkustígandi í þessu hjá okkur þessa dagana og það er ekkert leyndarmál að markmiðið í byrjun tímabils var að berjast um alla þá titla sem í boði eru. Við förum í hvern einasta leik til að sækja sigur, sama á móti hvaða andstæðingi við spilum, og það var ekkert öðruvísi gegn Bregenz. Við mættum í þetta einvígi með kassann úti og það er ekkert grín að spila tvo erfiða útileiki á tveimur dögum. Að vinna tíu marka sigur í tveimur leikjum er þess vegna gríðarlega sterkt.“

Hreiðar Levy byrjaði tímabilið meiddur en hann hefur komið inn með mikinn kraft í lið Valsmanna í síðustu leikjum og átti meðal annars stórleik gegn KA í síðustu umferð deildarkeppninnar þar sem hann varði 14 skot og var með 56% markvörslu.

„Þetta hefur gengið vel hjá mér í síðustu leikjum en mér finnst ég ennþá eiga mikið inni. Vonandi verð ég sömuleiðis betri og betri eftir því sem líður á tímabilið, en það hefur aðeins verið gegnumgangandi á mínum ferli að mér finnst ég alltaf eiga eitthvað inni til þess að gefa. Stundum þarf maður hins vegar að stoppa bara og læra að vera ánægður með eigin frammistöðu.“