Dagur B. Eggertsson
Dagur B. Eggertsson
Stefna borgaryfirvalda í skipulags- og húsnæðismálum hefur í megindráttum verið sú að auka við byggingar á dýrum svæðum en draga úr byggingum annars staðar. Þetta stafar af því að núverandi borgaryfirvöld telja að megintilgangur starfa þeirra sé að þétta byggð og þá verði annað að víkja. Óhjákvæmileg afleiðing þessarar einstrengingslegu stefnu hefur verið ört hækkandi íbúðaverð og offramboð af dýrum íbúðum í miðbænum og nágrenni en skortur á hagstæðum íbúðum austar í borginni.

Þetta hefur valdið mörgum erfiðleikum við að finna húsnæði sem hæfir kaupgetunni, en þeir geta tekið gleði sína á ný því að borgarstjóri er búinn að finna lausnina á þessum heimatilbúna vanda.

Í samtali við Morgunblaðið um helgina lýsti hann þeirri skoðun sinni að bankarnir ættu að breyta greiðslumati sínu til að gera fólki kleift að kaupa dýru íbúðirnar sem hann hefur lagt ofuráherslu á að séu byggðar í borginni.

Borgarstjóri segir að með því að kaupa vel staðsettar íbúðir geti fólk sparað eldsneytiskaup og önnur útgjöld vegna bifreiðar og ætti þannig að geta keypt dýrara húsnæði, bara ef að bankarnir hækkuðu greiðslumatið og lánin.

Þetta hlýtur að vera notaleg tilhugsun fyrir unga fólkið sem er að spara fyrir fyrstu íbúð. Verði Degi að ósk sinni getur það sleppt bílnum og borgað í staðinn meira til bankanna. Þetta er alger draumatillaga.