Kristín Þórisdóttir er markþjálfi og er í framhaldsnámi í kynlífsmarkþjálfun. Kynlífsmarkþjálfinn hjálpar pörum að tjá sig hvort við annað og vera opinská um langanir sínar og þrár í kynlífinu.
Kristín Þórisdóttir er markþjálfi og er í framhaldsnámi í kynlífsmarkþjálfun. Kynlífsmarkþjálfinn hjálpar pörum að tjá sig hvort við annað og vera opinská um langanir sínar og þrár í kynlífinu. Í morgunþættinum Ísland vaknar á K100 sagði Kristín það alþekkt að pör sem hefðu verið lengi saman upplifðu tilbreytingarleysi. Þó að kynlífsmarkþjálfun sé mjög persónuleg segir Kristín að hún hitti fólk fyrst og fremst í viðtölum en standi ekki yfir fólki í svefnherberginu. „Hands- on“-kynlífsmarkþjálfar eru þó ekki óþekkt fyrirbæri. Nánar á k100.is.