Hildur Davíðsdóttir fæddist í Reykjavík hinn 2. september 1967. Hún andaðist á Landspítalanum 1. nóvember 2019. Foreldrar hennar voru Davíð Kr. Jensson húsasmíðameistari, f. 8. apríl 1926, d. 1. janúar 2005, og Jenný Haraldsdóttir húsmóðir, f. 12. ágúst 1928, d. 3. nóvember 2009.

Systur hennar eru Valborg, f. 3. júní 1952, Kristrún, f. 8. maí 1954, Inga, f. 17. febrúar 1959, d. 26. október 2009, Jenný, f. 10. febrúar 1962 og Elsa María, f. 25. maí 1971. Börn systra eru 11 talsins.

Hildur giftist hinn 25. september 2004 Hreini Hafliðasyni, f. 25. ágúst 1970. Foreldrar hans eru Hafliði Hjartarson, f. 2. maí 1939, og Jónína B. Sigurðardóttir, f. 20. júní 1942. Bróðir Hreins er Hjörtur, f. 22. apríl 1961. Hann á 2 syni.

Hildur fór ung í Lyngás og fékk þar mikla og góða fræðslu hjá frábæru starfsfólki, þroskaþjálfum og kennurum. Seinna tók við starfshæfing og vinna í Bjarkarási og naut Hildur sín vel þar í nokkur ár. Síðan lá leiðin í Hlín, þar sem aðallega voru saumaðar flíkur úr gærum og vann hún þar smátíma. Þaðan fór hún í Ás vinnustofu, sem varð síðan lengst af vinnustaður hennar. Þar vann hún aðallega við vélsaum og pökkun, en var annars liðtæk í flest það sem til féll af verkefnum og sérstaklega listfeng við innpökkun á listmunum. Þessir fjórir staðir voru allir reknir af Ási styrktarfélagi og eru enn, ef frá er talinn Hlín, sem ekki er lengur til. Auk þessa hefur félagið leigt þeim íbúð í einu sambýli sínu, allt frá því að Hildur og Hreinn giftu sig og fóru að búa saman.

Hildur hafði brennandi áhuga á leiklist og söng og var lengi í leikhópnum Perlunni, auk þess að vera í söngnámi hjá Fjölmennt. Þetta voru sameiginleg áhugamál þeirra hjóna og varð m.a. til þess að þau fóru oft í leikhús, á hljómleika eða út að dansa og nutu þess vel. Þá var áhugi mikill fyrir ferðalögum og voru margar ferðirnar farnar, bæði utan lands og innan.

Útför Hildar fer fram frá Langholtskirkju í dag, 18. nóvember 2019, og hefst athöfnin klukkan 13.

Elsku konan mín.

Takk fyrir öll árin sem við áttum saman frá því við vorum börn. Allar skemmtilegu stundirnar í Lyngási og ekki síst þegar við lékum þar saman í söngleiknum Grease. Eða hvað það var gaman þegar við urðum ástfangin og fengum að gista heima hjá hvort öðru, það var nú meira fjörið.

Elsku Hildur mín, ég á svo margar góðar minningar um allt sem við höfum gert saman. Eins og í Leikhópnum Perlunni, sönghópnum Plútó, vinnunni í Ási og margt, margt fleira. Ég man hvað gaman var í öllum ferðunum, bæði innanlands og utan, sem við fórum í saman. Einnig á öllum hljómleikunum, leiksýningunum og böllunum. Alltaf jafn gaman með þér. Ég gleymi aldrei hvað þú varst falleg þegar við giftum okkur sem var fyrir 15 árum.

Elsku besta konan mín. Þú varst alltaf svo dugleg að sauma, bæði í vinnunni og heima og svo skiptumst við á að gera heimilisstörfin og áttum góða daga saman.

Elsku konan mín. Nú ert þú komin til Guðs og mömmu þinnar og pabba. Ég verð að vera duglegur, þó að ég sé einn núna. Ég sakna þín og það hafa komið tár í augun á mér þegar ég horfi á fallega mynd af þér.

Pabbi og mamma þakka allar ánægjustundirnar með þér, Hildur mín, og ég bið Guð að gæta þín.

Þinn eiginmaður,

Hreinn.

Elsku Hildur. Mér finnst svo ótrúlegt að þú sért farin frá okkur. Við áttum yndislegt heimili í Langagerði 60 þar sem við ólumst upp saman systurnar. Þú fjórum árum eldri en ég og þú umvafðir mig ást og hlýju frá fyrstu stundu. Þú hefur alltaf verið stór hluti af lífi mínu. Foreldrar okkar, Jenný og Davíð, kenndu okkur að bera virðingu fyrir öllum manneskjum, hvernig svo sem við fæðumst í þetta líf.

Hildur mín, þú ert búin að kenna mér svo margt í lífinu og átt stóran hlut í hvernig manneskja ég er í dag. Það var yndislegt að alast upp með þér, þú varst góð fyrirmynd fyrir mig, yngri systur þína, til dæmis var herbergið þitt alltaf svo snyrtilegt og þú bjóst alltaf fallega um rúmið þitt.

Stórum hluta af æskuárum okkar eyddum við í sumarbústað foreldra okkar við Þingvallavatn, á Móum. Þar áttum við yndislegar stundir úti í náttúrunni og ófáum stundum eyddum við saman við vatnið að veiða silung og hamingjan maður minn þegar hann beit á og við hlupum upp í bústað og báðum pabba að taka fiskinn af. Við fórum með foreldrum okkar í nokkuð margar utanlandsferðir sem við nutum öll, þar á meðal til Flórída, Svíþjóðar og Kanarí. Við systurnar ég og Hildur fermdumst saman og mömmu fannst mikið búið þegar þeim áfanga var náð að vera búin að ferma allar stelpurnar sínar sex.

Hildur, þú varst mikill gleðigjafi og alltaf svo kát og fín með skartið á réttum stöðum sem og naglalakkið. Það var mikil mildi að leiðir ykkar Hreins lágu saman en þið áttuð yndislegan tíma saman og mér er minnisstæður brúðkaupsdagurinn ykkar. Þú varst svo falleg og fín eins og alltaf og ég fékk þann heiður að mála þig og vera brúðarmey, afhenda ykkur giftingarhringana og passa upp á að fallegi brúðarkjóllinn þinn félli fallega á gólfinu þar sem þú sast með brúðarvöndinn svo stolt af manninum þínum honum Hreini. Þið nutuð þess að vera saman, hvort sem það var þegar þið voruð tvö ein saman á jólunum eins og þið vilduð á fallega heimilinu ykkar á Háteigsveginum eða fara saman út að borða, í leikhús eða á tónleika. Yndislegt hvað þið voruð dugleg að fara saman á alls konar viðburði. Við systurnar erum ævinlega þakklátar Hreini fyrir hvað hann hefur alltaf verið góður við hana Hildi okkar.

Hildur, þú hefur gefið mér dýrmætar minningar og ánægjustundir sem ég mun geyma í minningunni alla mína ævi. Ég veit að börnin mín og systur okkar Valborg, Kristrún og Jenný eru á sama máli og ég og allir þeir sem kynntust þér og þú komst í návígi við og snertir. Ég mun varðveita fallega blikið í augum þínum þegar þú horfðir á mig og sagðir að ég væri besta systir í heimi.

Nú ertu komin til mömmu, pabba og Ingu, þín verður sárt saknað elsku Hildur gleðigjafinn okkar.

Elsku Hildur mín,

nú mun ég ekki lengur horfa á fallega blikið í augum þínum þegar þú segir að ég sé besta systir þín.

Minning þín mun ávallt vera

í huga mér, gleðigjafi sem þú varst

og alltaf svo fín.

Elska þig endalaust og gleymi aldrei hversu mikið þú kenndir mér lífið á.

Þín

Elsa María.

Við andlát Hildar systur okkar spretta fram endalausar minningar, sem einkennast af glaðværð, væntumþykju, einlægni og jákvæðni. Hildur var næstyngst okkar systra. Hún fæddist á fjölskylduheimili okkar í Langagerði eins og við eldri systur hennar. Þar ólumst við allar upp við mikið ástríki og í samhentum systrahópi. Þrátt fyrir fötlun Hildar var ávallt lögð á það rík áhersla af hálfu foreldra okkar að Hildur fengi sambærilegt uppeldi og við hinar. Hún fékk tækifæri til að eflast og þroskast á sínum eigin forsendum. Hún fylgdist náið með, hvernig við máluðum okkur, sungum og dönsuðum. Fyrir okkur systurnar var það jákvæð og dýrmæt reynsla að alast upp með henni.

Æska Hildar einkenndist öðru fremur af gleði, hlátri og kátínu. Hæfileikar hennar komu snemma í ljós. Hún náði góðum tökum á handavinnu, prjónaskap og útsaumi. Hildur náði alla tíð að stytta sér stundir með handavinnu.

Hildur fór ung að árum í ferðir með foreldrum okkar og örverpinu Elsu Maríu. Þær voru ófáar utanlandsferðirnar, enda hafði hún unun af sól og vatni og náði snemma góðum tökum á sundi. Foreldrar okkar dvöldu jafnframt langdvölum að Móum, sumarhúsi fjölskyldunnar við Þingvallavatn. Elstu börnin okkar muna öll vel þann tíma og náðu þau að tengjast Hildi vel. Æ síðan á Hildur stað í hjarta þeirra.

Hildur kynntist Hreini ung að árum, en þau áttu bæði athvarf í Lyngási þar sem þau fengu dýrmæta fræðslu og hæfingu. Á þessum árum þróast með þeim gagnkvæm ást og djúp virðing, sem einkenndi samband þeirra alla tíð síðan. Þau trúlofuðust árið 1997 og gengu í hjónaband árið 2004. Þar nutum við þess að samgleðjast með brúðhjónunum á þessum mikla gleðidegi í lífi þeirra.

Hildur og Hreinn höfðu áhuga á dansi, leiklist og tónlist. Þau voru virkir þátttakendur í leikhópnum Perlunni um árabil. Hildur fór á námskeið í magadansi, náði góðum tökum á honum og hafði magadanssýningu í fertugsafmæli sínu. Þau voru dugleg að drífa sig á tónleika og leiksýningar, og höfðu sjálf frumkvæði að því alla tíð. Þau létu sig ekki muna um að fara á sömu sýninguna margsinnis ef þeim líkuðu hún vel. Þau höfðu yndi og ánægju af veislum og mannfögnuðum. Gleðin og ánægjan skein í gegn, og ekki var nú verra ef eitthvað óvænt bar upp á! Það var okkur systrunum öllum mikil gleði að vera með þeim, hvort sem var á heimilum okkar eða í sveitasælureitunum. Hápunktur heimsókna þeirra hjóna til Akureyrar var að sjálfsögðu heimsókn á Græna hattinn. Þar var ávallt tekið á móti þeim af mikilli virðingu. Áramótin skipuðu einnig mikilvægan sess hjá þeim, þar sem nýju ári var innilega fagnað með viðeigandi og jákvæðum hætti.

Að leiðarlokum kveðjum við kæra systur. Hún kenndi okkur svo margt, ekki síst að njóta líðandi stundar, gleðjast og taka lífinu eins og það er. Við erum þakklátar henni fyrir samfylgdina og þau forréttindi að hafa fengið að vera henni samferða í gegnum lífið. Hreini vottum við samúð okkar og eigum þá von að hann ylji sér um ókomna tíð við góðar minningar um yndislegan lífsförunaut.

Valborg, Kristrún og Jenný.

Margar ljúfar minningar koma upp í hugann þegar elsku Hildur Davíðsdóttir er kvödd í hinsta sinn. Hildur sem alltaf mætti mér með sitt fallega bros og hlýtt faðmlag. Hildur með Hreini sínum ástfangin og glöð. Hildur með fallegu jólagjöfina sem hún hafði búið til handa mér. Hildur að koma glöð, uppábúin og flott með Hreini í veislu eða annan gleðskap. Hildur að leika með Perlunni. Hildur í jólaboðum fjölskyldunnar að leika Þyrnirós við jólatréð og Hildur að horfa með aðdáun á manninn sinn, þegar hann flutti sínar ómissandi tækifærisræður. Við sem þekktum Hildi kveðjum hana með sorg í hjarta en líka miklu þakklæti fyrir hennar góða líf og allt sem hún var.

Hildur var stóra og eina ástin hans Hreins. Ég minnist þess að hafa séð þau sem unglinga í Lyngási þar sem Hreinn hafði ekki augun af Hildi og starði á hana með aðdáun og hrifningu. Það var líka skiljanlegt því Hildur var bæði gullfalleg, brosmild og með leiftrandi blik í augum. Hún var aðeins eldri en Hreinn og kannski ekki alveg eins viss í sinni sök en Hreinn beið rólegur og staðfastur þar til sigurinn var unninn og Hildur varð kærastan og síðar konan hans. Fáa menn hef ég þekkt sem hafa elskað eiginkonu sína jafn fölskvalaust og Hreinn elskaði og dáði Hildi. Segja má að það hafi bæði verið þeirra hamingja en einnig okkar hinna sem stóðum þeim nærri. Ég sendi Hreini vini mínum innilegustu samúðarkveðjur og bið góðan Guð að styðja hann og styrkja. Guð blessi fallega minningu Hildar Davíðsdóttur.

Lára Björnsdóttir.

Fyrir nokkrum árum fengum við í hljómsveitinni Plútó tvo frábæra félaga til liðs við okkur. Þetta voru þau hjónin Hildur og Hreinn. Þau höfðu bæði mikla leiklistarreynslu og höfðu áður starfað árum saman með leikhópnum Perlunni. Þau hjónin voru miklir gleðigjafar og lífguðu sannarlega upp á æfingar og svo tónleika okkar. Þegar við í Plútó hugsum til Hildar minnumst við þeirra mannkosta sem hún bjó yfir. Hún var ávallt glöð og til í allt, hafði mjög gaman af að syngja, alveg yndisleg kona. Hún var glæsileg, alltaf svo fín og flott og snyrtileg.

Margir í Plútó höfðu þekkt Hildi lengi. Garðar Samúel starfaði lengi með henni í Perlunni. Didda hafði þekkt Hildi lengi, hafði unnið með henni í Bjarkarási og Ási. Sæunn minnist þess þegar hún og Hreinn grétu af gleði þegar hún söng alein lagið Blátt lítið blóm eitt er sl. vor á Vortónleikum Fjölmenntar og viðtökur tónleikagesta voru alveg magnaðar. Hún sló alveg í gegn. Hún hafði gaman af því sem hún tók sér fyrir hendur og stundaði það með gleði og glæsibrag. Hildigunnur minnist þess að Hildur hafi einnig komið hreint og beint fram. Í karókí söng hún af innlifun og átti stund og stað. Elín Helga minnist þess hve góð hún var og tillitssöm við alla. Ágústa minnist þess þegar Plútó kom og söng í fimmtugsafmæli Hildar fyrir tveimur árum. Það hafi verið mikil upplifun bæði fyrir Plútófélaga og Hildi. Viktoríu Rán fannst Hildur mjög skemmtileg kona. Haraldi Viggó, trommuleikaranum okkar, er orða vant og mjög sorgmæddur. Öll erum við Plútófélagar harmi slegin yfir andláti Hildar. Okkur langar að þakka samfylgdina síðustu sex árin. Hreini og fjölskyldum þeirra beggja vottum við okkar innilegustu samúð. Minningin um yndislega, glæsilega og skemmtilega konu og Plútófélaga lifi.

Fyrir hönd Plútó,

Rósa Jóhannesdóttir og Theodór Karlsson.

Hildur Davíðsdóttir var einn af stofnendum Leikhópsins Perlunnar og tók þátt í sýningum hópsins í fjöldamörg ár. Hún lék meðal annars í sýningunum „Síðasta blómið“, „Mídas konungur“ og „Ef þú giftist“ auk fjölda annarra verka. Hildur fór í margar leikferðir með hópnum, til að mynda til Noregs, Þýskalands og Bandaríkjanna. Þá lék hún í myndbandi sem gert var við lagið „Svefn-g-englar“ með hljómsveitinni Sigur Rós. Hildur var með mikla útgeislun og góð leikkona. Auk leiklistarinnar æfði hún magadans og lagði stund á söng. Hún var hæfileikarík listakona og frábær leikfélagi.

Blómarósina okkar og perluna Hildi Davíðsdóttur kveðjum við með söknuði. Okkar innilegustu samúðarkveðjur fá Hreinn Hafliðason og fjölskyldur þeirra beggja.

Bergljót Arnalds og Leikhópurinn Perlan.