Fyrirmyndir Að skoða heiminn frá sjónarhorni ungs fólks gefur okkur svolítið holla sýn og aðra sýn á það sem er að gerast, segir Brynhildur Þórarinsdóttir.
Fyrirmyndir Að skoða heiminn frá sjónarhorni ungs fólks gefur okkur svolítið holla sýn og aðra sýn á það sem er að gerast, segir Brynhildur Þórarinsdóttir. — Morgunblaðið/Hari
Ragnhildur Þrastardóttir ragnhildur@mbl.is Ungfrú fótbolti er bók sem inniheldur sögu um tvær fótboltaóðar unglingsstelpur á upphafsárum kvennafótboltans. Sagan á sér stað árið 1980 innan um hálfbyggðu húsin í Breiðholtinu. Brynhildur Þórarinsdóttir er höfundur bókarinnar. Hún segir að þarna sé á ferðinni ungmennabók fyrir ungmenni á öllum aldri. Ungfrú fótbolti er sextánda bók Brynhildar.

Ragnhildur Þrastardóttir

ragnhildur@mbl.is

Ungfrú fótbolti er bók sem inniheldur sögu um tvær fótboltaóðar unglingsstelpur á upphafsárum kvennafótboltans. Sagan á sér stað árið 1980 innan um hálfbyggðu húsin í Breiðholtinu. Brynhildur Þórarinsdóttir er höfundur bókarinnar. Hún segir að þarna sé á ferðinni ungmennabók fyrir ungmenni á öllum aldri. Ungfrú fótbolti er sextánda bók Brynhildar.

„Þær eru alltaf í götubolta með vinum sínum, bæði stelpum og strákum. Það dugar þeim ekki. Þær vilja spila á alvöruvelli eins og strákarnir, þær langar að spila og keppa en það gengur brösuglega því það er árið 1980 og kvennafótboltinn er rétt að stíga sín fyrstu skref,“ segir Brynhildur.

Það er því erfitt fyrir þrettán ára unglingsstelpur að fá að æfa fótbolta.

„Það eru engir yngri flokkar og bara örfá lið komin með meistaraflokk. Það er ansi mikið bil á milli þess að vera 13 ára og fullorðin kona að spila. Þær fara af stað í baráttu til þess að mark sé tekið á þeim. Þær vilja sýna að þeim sé alvara og að þær eigi fullt erindi í þetta.“

Vigdís Finnbogadóttir, fyrsti kvenforseti í heimi, leikur stórt hlutverk í sögunni en sagan gerist sama sumar og hún býður sig fram til forseta.

Hefðir og kerfi hindra ekki

„Mér fannst gaman að tefla þessum sögum saman því hún er auðvitað að heyja sömu baráttu og stelpurnar. Það er ekki tekið mark á henni í fyrstu og hún er þarna að fara inn á keppnisvöll karlanna því það eru karlar í öllum stjórnunarstöðum og það hefur ekki hvarflað að neinum að kona geti orðið forseti áður en Vigdís stígur fram,“ segir Brynhildur.

Stelpurnar sjá Vigdísi sem fyrirmynd.

„Stelpurnar í sögunni átta sig á því hversu mikilvægt það er að konur láti til sín taka og láta hvorki hefðirnar né kerfið stoppa sig. Þetta er saga um það að fólk eigi að láta drauma sína rætast og stelpur og strákar eigi að hafa sömu tækifæri til að sinna því sem þau hafa áhuga á eða hæfileika til,“ segir Brynhildur sem tekur fram að rammar utan um kynjahlutverk hafi einnig komið niður á strákum og því séu einnig gerð skil í bókinni.

Brynhildur vinnur með mikilvægi fyrirmynda í Ungfrú fótbolta .

„Ég byggi svolítið á minni reynslu því ég var fótboltastelpa og ég þekki þetta bras við að reyna að æfa og reyna að láta taka mark á manni í boltanum. Þegar ég stundaði fótbolta á níunda áratugnum höfðum við engar kvenkyns fyrirmyndir því þetta var svo nýtt og það var bókstaflega ekkert fjallað um kvennafótboltann í fjölmiðlum.“

Brynhildur og vinkonur hennar í boltanum voru því í sífelldri jafnréttisbaráttu. „Bara einfaldir hlutir eins og að fá að æfa á grasi eins og strákarnir. Fá almennilega æfingatíma, fá fólk til að mæta, fá fjölmiðlafólk til að mæta, sem er enn vandamál í dag, alla vega miðað við karlmennina, en það hafa auðvitað orðið miklar framfarir. Íslenska kvennalandsliðið hefur náð langt á heimsmeistara- og Evrópumótum og stelpur alveg niður í fjögurra ára eru á flottum æfingum.“

Í sögunni byggir Brynhildur á heimildum. „Þetta er ekki söguleg skáldsaga en til dæmis er allt sem viðkemur framboði Vigdísar sótt í heimildir og líka það sem viðkemur kvennaknattspyrnunni þótt ég setji það kannski í annað samhengi,“ segir Brynhildur og tekur sem dæmi sögu af því þegar dómarar mættu ekki á úrslitaleik meistaraflokks kvenna.

Saga sem má ekki gleymast

Spurð hvers vegna Ungfrú fótbolti sé mikilvæg fyrir ungmenni samtímans segir Brynhildur:

„Mig hafði lengi langað að gera upphafi kvennaknattspyrnunnar skil á einhvern hátt. Mér finnst að þessi saga megi ekki gleymast. Það kostaði átök að koma þessu á koppinn og við höfum náð heilmiklum árangri en við erum samt enn að ströggla við ýmislegt.“

Brynhildur segir einnig að hún hafi viljað halda heiðri Vigdísar á lofti. „Nú er það langt síðan hún var forseti að fjöldi krakka þekkir ekki til hennar. Það var svo mikilvægt á þessum tíma að fá kvenkynsfyrirmyndir, bæði fyrir stelpur og stráka. Eins og segir í bókinni: „Það að eitthvað hafi alltaf verið svona eru verstu rök í heimi.“ Maður á að storka staðalmyndunum og storka hefðunum.“

Annar þráður sem Brynhildur vill gera skil í Ungfrú fótbolta er Breiðholtið sem spennandi og skemmtilegt uppvaxtarsvæði.

„Ég flutti í Breiðholtið þegar ég var níu ára og strax þá var búið að skilgreina hverfið sem vandræðasvæði og svæði sem væri hreinlega óhollt börnum. Vissulega var hérna fullt af fólki í basli en þetta var líka ótrúlega skemmtilegt hverfi til að alast upp í. Það var allt morandi í krökkum og mikill leikur og mikil samstaða og mikið um ævintýri. Það var nokkuð sem mig langaði að ná fram, að Breiðholtið hefði verið annað en þessi ímynd sem fólk hefur af því.“

Ungfrú fótbolti er sextánda bók Brynhildar. Það er því ekki úr vegi að spyrja hana hvernig það sé að skrifa bókmenntir fyrir börn og ungmenni.„Það er alveg ótrúlega skemmtilegt. Börn og unglingar eru alveg frábær lesendahópur. Þau eru líka svo hreinskilin, þau láta mann alveg vita hvað virkar og hvað ekki. Maður finnur það strax,“ segir Brynhildur, sem er nú meira að færa sig úr barnabókum og yfir í ungmennabókmenntir þar sem þær henti breiðu aldursbili.

„Að skoða heiminn frá sjónarhorni ungs fólks gefur okkur svolítið holla sýn og aðra sýn á það sem er að gerast. Það eru svo margir sem njóta þessara bókmennta þótt kennitalan þeirra passi ekki endilega inn í markhópinn.“

Brynhildur hefur nú þegar fengið jákvæð viðbrögð á Ungfrú fótbolta .

„Þótt það sé ekki langt síðan hún kom út hef ég fengið viðbrögð frá stelpum og konum sem hafa einhvern tímann verið að æfa fótbolta eða ólust upp í Breiðholtinu á sínum tíma. Þeim finnst gaman að lesa svona bækur sem þær geta lifað sig inn í og speglað sig í.“