Embætti landlæknis leggst gegn breytingum á lyfjalögum sem lagt er til að gerðar verði samkvæmt frumvarpi þriggja þingmanna Sjálfstæðisflokksins.

Embætti landlæknis leggst gegn breytingum á lyfjalögum sem lagt er til að gerðar verði samkvæmt frumvarpi þriggja þingmanna Sjálfstæðisflokksins. Embættið gerir alvarlegar athugasemdir við hugmyndir um að veita Lyfjastofnun heimild til að veita undanþágu til sölu tiltekinna lausasölulyfja í almennri verslun og mælir gegn því að frumvarpið verði að lögum.

Frumvarpið var áður flutt á síðasta þingi og er nú lagt fram óbreytt af Unni Brá Konráðsdóttur, Óla Birni Kárasyni og Bryndísi Haraldsdóttur. Flutningsmenn telja brýnt að auka frelsi í sölu lausasölulyfja og breyta lögum í því skyni að heimila sölu þeirra í almennum verslunum.

„Ísland stendur mörgum Evrópuríkjum að baki hvað varðar sölu á lausasölulyfjum í almennum verslunum, en í Danmörku, Noregi og Svíþjóð er slík sala heimil. Sem dæmi um lausasölulyf má nefna væg verkjalyf, ofnæmislyf og magalyf.

Þetta fyrirkomulag hefur ekki leitt til ofnotkunar lyfja eða haft slæm áhrif á lýðheilsu,“ segir m.a. í greinargerð.

Sala lausasölulyfja
» Svíar leyfðu sölu lausasölulyfja utan apóteka árið 2009.
» Af Norðurlandaþjóðunum banna aðeins Ísland og Finnland sölu lausasölulyfja í almennum verslunum.