[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Fótbolti Jóhann Ingi Hafþórsson johanningi@mbl.is Íslenska karlalandsliðið í fótbolta lauk leik í H-riðli í undankeppni EM með 2:1-útisigri á Moldóvu í gærkvöldi. Birkir Bjarnason og Gylfi Þór Sigurðsson skoruðu mörk Íslands.

Fótbolti

Jóhann Ingi Hafþórsson

johanningi@mbl.is

Íslenska karlalandsliðið í fótbolta lauk leik í H-riðli í undankeppni EM með 2:1-útisigri á Moldóvu í gærkvöldi. Birkir Bjarnason og Gylfi Þór Sigurðsson skoruðu mörk Íslands. Sigurinn var verðskuldaður og hefði getað verið mun öruggari hefði íslenska liðið nýtt færin sín betur. Hvað eftir annað spiluðu sóknarmenn Íslands skemmtilega á milli sín og bjuggu til fín færi. Varnarleikurinn var hins vegar ekki eins öruggur og sköpuðu heimamenn sér fín færi inn á milli.

Hægribakvarðarstaðan heldur áfram að vera höfuðverkur eftir að Birkir Már Sævarsson missti sætið sitt í liðinu og réð Guðlaugur Victor Pálsson illa við hinn spræka Sergiu Platica á vinstri kantinum hjá Moldóvu. Mark heimamanna kom einmitt þegar Platica sendi fyrir markið á Nicolae Milinceanu sem kláraði vel. Sverrir Ingi Ingason nýtti tækifærið sitt ekki sérstaklega vel í miðri vörninni með Ragnari Sigurðssyni, sem var töluvert öruggari. Liðið saknaði Arons Einars Gunnarssonar á miðsvæðinu en hann ver vörnina betur en Gylfi og Birkir.

Flott frumraun Mikaels

Hinum megin á vellinum nýttu óreyndari leikmenn tækifærið töluvert betur. Mikael Anderson leit mjög vel út, en hann var í byrjunarliðinu í fyrsta skipti í keppnisleik. Mikael fékk tvö þung högg í leiknum og þurfti að fara af velli í seinni hálfleik vegna meiðsla, en hann lagði upp fyrsta markið á Birki. Arnór Sigurðsson var sprækur á hinum vængnum og spiluðu þeir mjög vel saman með Birki Bjarnasyni, Jóni Daða Böðvarssyni og Gylfa Þór Sigurðssyni. Sóknir Íslands voru oft á tíðum mjög fallegar og vantaði lítið upp á að fleiri enduðu með marki. Birkir átti t.a.m. skot í slá og stöng í fyrri hálfleik og Gylfi klikkaði á vítaspyrnu í seinni hálfleik og fékk auk þess fín skotfæri utan teigs. Gylfi hefur nýtt vítaspyrnur sínar illa á árinu og gæti verið kominn tími á nýjan spyrnumann.

Slæmu fréttirnar fyrir sóknarlínuna voru þær að Kolbeinn Sigþórsson þurfti að fara meiddur af velli, rétt eins og Alfreð Finnbogason gegn Tyrkjum á fimmtudag. Viðar Örn Kjartansson leysti Kolbein af hólmi en lét lítið að sér kveða, fyrir utan eitt mjög gott færi í fyrri hálfleik. Liðið saknaði Kolbeins, eftir að hann fór af velli.

Hlutirnir féllu ekki með Íslandi

Markmið íslenska liðsins fyrir undankeppnina var að komast beint á EM og að enda í þriðja sæti riðilsins eru því ákveðin vonbrigði, þótt undankeppnin hafi alls ekki verið alslæm. Hlutirnir féllu oft á tíðum ekki með okkar mönnum og óvænt úrslit Tyrkja gegn Frökkum settu strik í reikninginn og slæmur útileikur gegn Albaníu.

Það voru smáatriði sem sáu til þess að Ísland þarf að treysta á umspil. Þar bíður væntanlega Rúmenía, Ísrael eða Búlgaría í undanúrslitum 26. mars á heimavelli, vonandi Laugardalsvelli, en það fer eftir veðri og færð á vegum. Dregið verður í umspilið næsta föstudag.

„Það var margt jákvætt við okkar leik í kvöld (gærkvöldi). Við sköpuðum helling af marktækifærum og spiluðum boltanum mjög vel á milli manna. Við skorum tvö mjög góð mörk eftir laglegt samspil og það var fullt sem við gerðum vel en aðrir hlutir sem við hefðum getað gert talsvert betur.

Nítján stig hefðu átt að duga

Aðalmarkmiðið var hins vegar að vinna leikinn og það tókst. Við endum riðlakeppnina með 19 stig sem hefði að mínu mati átt að duga til þess að komast áfram í lokakeppnina,“ sagði Erik Hamrén landsliðsþjálfari í samtali við RÚV eftir leik.

Skagamaðurinn Arnór Sigurðsson tók í svipaðan streng.

„Þetta var kannski ekki alveg jafn öruggt og margir bjuggust við en að sama skapi skorum við tvö mjög góð mörk þar sem við spilum okkur mjög vel í gegnum vörnina hjá þeim,“ sagði Arnór.

Eftir fína frammistöðu í síðustu tveimur leikjum og heilt yfir ágæta undankeppni er íslenska liðið væntanlega bjartsýnt á góðan árangur í umspilinu og möguleikana á að vera með á þriðja stórmótinu í röð.

MOLDÓVA – ÍSLAND 1:2

0:1 Birkir Bjarnason 17. eftir flottan samleik við Ara Frey Skúlason og Mikel Anderson.

1:1 Nicolae Milinceanu 56. með skoti af stuttu færi eftir fyrirgjöf frá vinstri.

1:2 Gylfi Þór Sigurðsson 65. með skoti úr miðjum vítateig eftir að Viðar Örn Kjartansson sendi fyrir markið og markvörðurinn sló boltann frá.

Gul spjöld

Birkir 19. (brot), Craciun 34. (brot), Guðlaugur Victor 43. (brot), Rata 49. (brot), Gylfi Þór 64. (brot), Ionita 76. (brot), Samúel 90. (brot)

MM

Birkir Bjarnason

M

Ari Freyr Skúlason

Arnór Sigurðsson

Gylfi Þór Sigurðsson

Mikael Anderson

Jón Daði Böðvarsson

Moldóva: (4-5-1) Mark : Alexei Koselev. Vörn : Maxim Focsa, Igor Armas, Artur Craciun, Sergiu Platica. Miðja : Vadim Rata, Catalin Carp (Maxim Cojocaru 90), Artur Ionta, Eugeniu Cociuc, Radu Ginsari (Dino Graur 83). Sókn: Nicolae Milinceanu (Vitalie Damascan 59).

Ísland: (4-4-2) Mark : Hannes Þór Halldórsson. Vörn : Guðlaugur Victor Pálsson, Sverrir Ingi Ingason, Ragnar Sigurðsson, Ari Freyr Skúlason. Miðja : Arnór Sigurðsson, Birkir Bjarnason (Hörður B. Magnússon 87), Gylfi Þór Sigurðsson, Mikael Anderson (Samúel Kári Friðjónsson 55). Sókn: Jón Daði Böðvarsson, Kolbeinn Sigþórsson (Viðar Örn Kjartansson 29).

Dómari : Pavel Kralovec, Tékklandi.

Áhorfendur : Um 4.000.