Skrautlegar buxur frá Emilio Pucci eru nú á útsölu á Outnet.com.
Skrautlegar buxur frá Emilio Pucci eru nú á útsölu á Outnet.com.
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Eitt best geymda leyndarmál internetsins er vefverslunin Outnet.com. Á þessari síðu er að finna flíkur eftir fræga hönnuði á útsölu. Ef þú ert nísk eða nískur með dýran smekk þá er þetta síðan sem á eftir að lífga hressilega upp á fataskápinn þinn.

Eitt best geymda leyndarmál internetsins er vefverslunin Outnet.com. Á þessari síðu er að finna flíkur eftir fræga hönnuði á útsölu. Ef þú ert nísk eða nískur með dýran smekk þá er þetta síðan sem á eftir að lífga hressilega upp á fataskápinn þinn. Þar er auðvitað misjafnt hvað er til á hverjum tíma eins og gengur og gerist í verslunum almennt. En fólk sem hefur einstakan áhuga á fínerísfötum ætti að geta fundið draumadressið fyrir minni peninga. Sérstaklega ef fólk nennir að kíkja reglulega inn á síðuna.

Verslunin selur til dæmis föt eftir Diane von Furstenberg, Emilio Pucci, Gucci, Valentino, Chloé og Balenciaga svo einhver merki séu nefnd.

mm@mbl.is