Hægt er að leika sér látlaust með litapallettuna. Hér eru ljósir náttúrulegir litir í forgrunni sem passa vel fyrir settleg jólaboð.
Hægt er að leika sér látlaust með litapallettuna. Hér eru ljósir náttúrulegir litir í forgrunni sem passa vel fyrir settleg jólaboð.
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Jólalína Lancôme 2019 er kvenleg og fögur. Litapalletta með 12 litum sem gaman væri að fá í skóinn, nú eða bara gefa þeim sem manni þykir vænt um. Marta María | mm@mbl.is

Að kunna að farða sig fallega finnst ákveðnum hópi fólks eftirsóknarvert. Til þess að geta farðað sig og bætt útlit að einhverju leyti skiptir máli að vera með réttu verkfærin við höndina. Þá kemur jólalína Lancôme eins og himnasending, en í línunni er að finna 12 gullfallega augnskugga sem hægt er að leika sér endalaust með. Í litapallettunni er litunum skipt upp í þrjú þemu. Í hverjum hópi eru fjórir litir, einn grunnlitur til að bera á augnlokið allt, einn „highlighter“, einn litur til að setja meðfram augnlínunni og einn litur til að bera á augnkrókinn til að búa til meiri dramatík. Þannig getur hver og einn leikið sér að vild til þess að ná fram réttu lúkki fyrir jólaboðin eða bara áramótateiti ársins.

Til að toppa augnförðunina kemur Monsieur BIG maskarinn til bjargar. Hann gefur náttúrlega, mikla þykkingu, lengir augnhárin og má auðveldlega byggja upp fyrir hvaða lúkk sem er. Hvort sem þú vilt létta áferð yfir daginn eða mikla, dramatíska áferð fyrir kvöldið er þessi maskari fyrir þig.