[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Mataræði fer oft heldur betur úr rútínu yfir hátíðirnar. Matarboð og veislur leiða oft til þess, auk þess sem hefðbundinn jólamatur og konfekt er ekki beint hollt.

Mataræði fer oft heldur betur úr rútínu yfir hátíðirnar. Matarboð og veislur leiða oft til þess, auk þess sem hefðbundinn jólamatur og konfekt er ekki beint hollt. Við fengum því Júlíu Magnúsdóttur , heilsumarkþjálfa og heilsukokk, til að deila með okkur því sem hún gerir sér gott yfir hátíðir og við vorum ekki svikin. Allar uppskriftirnar eru vegan og án hvíts sykurs. Marta María | mm@mbl.is

Júlía er heilsumarkþjálfi og kokkur og stendur fyrir heimasíðunni lifdutilfulls.is og uppskriftabókinni Lifðu til fulls. Hún hefur síðustu sjö árin hjálpað fólki að tækla sykurlöngunina, fyllast orku og líða betur í eigin líkama með breyttum lífsstíl og bragðgóðum mat frá netnámskeiðum sínum.

„Það hefur verið mikil vitundarvakning síðustu ár og eru sífellt fleiri að prófa sig áfram með grænmetisrétti og sleppa unna kjötinu alveg eða að minnka það talsvert. Það þarf nefnilega alls ekki að vera þannig að jólunum fylgi magakveisa, bjúgur og bólgur sem tekur síðan allan janúar að losa sig við. Möguleikarnir á hollum jólauppskriftum eru endalausir og ekki síður bragðgóðir! Þetta snýst allt um að byrja, taka skrefið og prófa sig áfram. Kannski eruð þið með eitthvað af klassísku réttunum í bland við nýja hollari yfir jólin eða þá að þið prófið að gera holl sætindi án sykurs til að eiga heima þegar ykkur langar í eitthvað sætt,“ segir Júlía.

„Uppskriftirnar sem ég deili virðast kannski framandi, en eftir að þið hafið gert þær einu sinni verða þær léttari næst. Á heimasíðu Lifðu til fulls í desember má finna margar fleiri hollar kræsingar fyrir jólin og jafnvel einfaldari uppskriftir eins og kanilhjúpaðar möndlur, kakó og smákökur! Svona klassíska hluti í hollum útfærslum.“

Súkkulaðitrufflur með lakkrís

„Sem krakki var ég alltaf mjög hrifin af lakkrís og þegar við fórum í leikhús gaf amma okkur lakkrís í poka! En lakkrís er auðvitað fullur af sykri svo það var mikil áskorun að gera holla útgáfu af því en þrautseigjan í mér gafst ekki upp og úr urðu þessir himnesku konfektmolar! Það er sannarlega engu líkt að bíta í stökkan súkkulaðihjúp og finna þar silkimjúka súkkulaðifyllingu og örlítið af marsipanlakkrís fyrir miðju... úfff! Þessir eru smá handavinna en gott konfekt krefst ástar og umhyggju,“ segir hún.

Ekta súkkulaðitrufflur með lakkrís

Uppskrift gefur 35-40 trufflur, fer eftir stærð

1 bolli (130 g) möndlur

1¼ bolli (150 g) mjúkar döðlur (mikilvægt að döðlurnar séu mjúkar)

1 tsk. vanilluduft eða 1 tsk. vanilludropar

salt á hnífsoddi

smá vatn

¼ bolli (40 g) kakó

rétt undir ¼ bolla (60 g) kakósmjör t.d. frá The Raw Chocolate Company

Marsipanlakkrísinn

1/4 bolli afhýddar möndlur (þær verða að vera afhýddar)

1½ msk. hlynsíróp

1/4 tsk. vanilluduft eða ¼ tsk. vanilludropar

1 tsk. hreint lakkrísduft (t.d. gróft duft frá Lakrids by Johan Bülow sem fæst í Epal)

10 klípur himalajasalt (í kringum 1 tsk.)

¼ tsk. activated charcoal-duft (valfrjálst að nota þar sem þetta bætir bara svarta litinn. Fæst í Heilsuhúsinu)

Súkkulaðihjúpur

75% dökkt súkkulaði, sætt með kókospálmasykri eða annað lífrænt dökkt súkkulaði (t.d. frá Vivani)

Álfaduft

Gult: pistasíur, túrmerik og sítrónubörkur

Rautt: frostþurrkuð jarðarber

Grænt: pistasíuhnetur og matcha duft

Svart: 100% fínt lakkrís duft (t.d fínt frá Lakrids by Johan Bülow sem fæst í Epal)

Hvít: kókosmjöl eða kókoshveiti

Hraun: kakónibbur

Kvöldið áður þarf að gera eftirfarandi: Ef þið kaupið afhýddar möndlur fyrir lakkrísinn er óþarfi að leggja þær í bleyti. Ef þið finnið ekki afhýddar möndlur má leggja venjulegar möndlur í bleyti í 5-8 klst. eða yfir nóttu og taka hýðið síðan af þeim.

Fyrir lakkrísinn: Byrjið á að leggja kakósmjör í vatnsbað svo það sé klárt fyrir trufflurnar. Útbúið lakkrísinn með því að mala afhýddu möndlurnar í blandara eða kaffikvörn í afar fínt mjöl. Bætið við restinni af hráefnum og vinnið þar til blandan myndar deigáferð. Setjið í skál og geymið í kæli á meðan þið útbúið súkkulaðitrufflurnar.

Fyrir súkkulaðitrufflurnar: Byrjið á að mala möndlur í afar fínt mjöl fyrst, svipað og gert var með lakkrísnum. Bætið þá við döðlum, vanillu og salti þar til silkimjúkt og kekkjalaust deig myndast. Bætið út í örlitlu vatni ef þið þurfið, um það bil 1-2 msk. kakó og bræddu kakósmjöri er næst bætt út í og hrært örlítið. Geymið í skál og kælið aðeins.

Setjið allt saman: Takið næst 1 tsk. af súkkulaðideiginu og þekið út flatt í lófa, myndið litla kúlu af lakkrísdeiginu (um það bil ¼ tsk. að stærð) og setjið ofan á súkkulaðideigið, rúllið upp og leggið til hliðar. Kælið í um það bil klukkutíma eða yfir nótt. Bræðið súkkulaði og gerið duftið klárt ef þið notið það. Leggið bökunarpappír á eldhúsborðið. Hafið brædda súkkulaðið til hliðar og duft í skálum. Dýfið súkkulaðitrufflunni í súkkulaðið, veiðið upp úr með skeið og rúllið upp úr því dufti sem þið viljið. Leggið á bakka með hreinum bökunarpappír og setjið það síðan í kæli eða frysti. Kælið í a.m.k. 1-2 klst. áður en borið er fram!

Jólasteikin

„Steikin mín er innblásin af líbönsku mataræði og ferðalögum mínum um Ísrael og Indland. Falleg, holl og ómótstæðilega góð! Mér finnst alveg ómissandi að fegra hana með granateplunum,“ segir Júlía.

Blómkálssteik með kókosrjómasósu

og granateplum

1 blómkálshaus

1 msk. ólífuolía eða 1 msk. vegan-smjör brætt

1 tsk. sítrónusafi

1 tsk. hlynsíróp

Kryddblanda

1 tsk. salt

½ tsk. malað kúmmín

½ tsk. kóríander

kardimommuduft á hnífsoddi

múskat á hnífsoddi

Sósa

3/4 bolli kókosmjólk úr dós (eða notið Nush-möndluost eða Nush-kasjúhnetujógúrt án bragðs sem fæst t.d. í Nettó fyrir örlítið þykkari sósu)

1 msk. hvítt tahini

örlítið af sítrónuberki

örlítill sítrónusafi

salt og pipar eftir smekk

Til skreytingar: Granatepli, möndluflögur, sítrónubörkur, fersk steinselja.

Hitið ofninn við 190°C. Fjarlægið lauf blómkálsins og skerið stilkinn í burtu þannig að blómkálið geti staðið upprétt. Fyrir enn sterkara bragð má skera blómkálið í 2-4 hluta (fer eftir stærð blómkáls) og tvöfalda magn kryddblöndunnar.

Setjið blómkálið í eldfast mót, hrærið kryddblönduna saman í skál og penslið yfir. Hyljið mótið með loki eða álpappír og eldið í 40-50 mínútur ef þið eldið heilt blómkál eða 20-30 mínútur ef þið skerið blómkálið. Eldið aðeins þar til miðja blómkálsins er orðin mjúk og hægt er að stinga hníf í gegn. Þá er álpappírinn tekinn af og blómkálið eldað í 5-10 mín. til viðbótar eða þar til gyllt og örlítið stökkt að utan.

Útbúið á meðan sósuna með því að blanda öllu saman í skál eða blandara. Geymið í kæli.

Berið blómkálið fram með sósunni, granateplum, ristuðum möndluflögum, sítrónuberki og ferskri steinselju. Frábær jólasteik eða sem meðlæti.

Vegan-jólaís

„Ég er mikil ískona og í gegnum árin hef ég gert ýmsar tilraunir þar til ég gerði þessa sem er að mínu mati fullkomin! Svo ekki sé minnst á heimferð frá Bandaríkjunum þar sem ég dröslaðist heim með heila ísvél í troðinni handfarangurstösku. Þetta var ekki síðasta ísvélin sem ég keypti mér get ég sagt þér – því þessi brann með látum þegar ég asnaðist til að stinga henni í samband án straumbreytis eftir aðeins nokkurra mánaða notkun. Blessuð sé minning hennar. Seinni ísvélin kom svo með vinafólki að utan ári seinna og stendur hún enn hnarreist í eldhúsinu. Ég hef ekki klikkað á straumbreytinum aftur og ætla mér ekki að gera það!

Það er eitthvað svo jólalegt við heimagerðan ís! Það má bæta á hann allskonar kurli og sósu að eigin vali. Ég nota örvarrót í ísinn sem fæst í versluninni Bændur í bænum á Grensásvegi.

Hinn fullkomni vegan-ís

1 kæld kókosdós (sjá athugasemdir)

1/4 bolli hlynsíróp

½ tsk. örvarrót (arrowroot) eða 1 tsk. maísterkja

1 tsk. vanilludropar

1/4 tsk. vanilluduft (sjá athugasemdir)

Súkkulaðisósa

2 msk. kakóduft

4 msk. kókospálmanektar/hlynsíróp

2-4 dropar stevia

2 msk. kókosolía, brædd í vatnsbaði og 1 msk. vatn

salt eftir smekk

Gott með ísnum

Myntusúkkulaði t.d. frá Green&Black's organic og hindber

lakkrísduft

Saltkaramella. Notið þá karamellusósu frá snickers-köku í uppskriftabók Lifðu til fulls og bætið við með súkkulaðispónum og söxuðum möndlum. Þetta er hreint lostæti

Klassísk heit súkkulaðisósa og jarðarber

Súkkulaðisósa og mórber

Hvítt súkkulaði og rabarbari

Kvöldið áður: Kælið kókosmjólkina og ef þið eigið ísvél kælið þá ílátið.

Hrærið öll innihaldsefnin saman í blandara og vinnið þar til silkimjúkt. Smakkið til og bætið meiri vanillu við ef þið viljið meira vanillubragð en hlynsírópi ef þið viljið ísinn sætari.

Ef þið notið ísvél má setja ísblönduna í ísvélina samkvæmt leiðbeiningum vélarinnar og láta vinna í kringum 20 mín. Þegar ísinn er klár er hann settur í stálfrystibox eins og brauðform.

Takið ísinn út og leyfið að standa við stofuhita í 5-10 mín. áður en þið berið hann fram.

Ef þið eigið ekki ísvél má setja ísinn í stálílát (sjá athugasemdir) og frysta. Fyrir bestu niðurstöður og rjómkenndan ís má taka ísinn úr frysti og hræra í honum í forminu og setja aftur í frysti. Þetta er gert á klukkustundarfresti næstu 4-6 tíma. Þetta hleypir lofti að ísnum sem hjálpar til við að gera hann rjómakenndan.

Berið fram eins og ykkur þykir best og leyfið hugmyndafluginu að ráða. Til að gera súkkulaðisósuna setjið þá hráefnin í blandara og vinnið á lágri stillingu þar til silkimjúkt. Bragðið og bætið við sætu eftir þörfum. Hitið upp í potti eða notið sem kalda sósu.

Hægt er að fylgjast með Júlíu á Instagram/lifdutilfulls.