Það getur reynt á taugarnar að undirbúa jólin og því þurfa hinir fullorðnu að muna að gera vel við sig á jóladagsmorgun. Það þarf ekki að kosta mikla fyrirhöfn að útbúa fallegan disk af mat fyrir þennan morgun.
Það getur reynt á taugarnar að undirbúa jólin og því þurfa hinir fullorðnu að muna að gera vel við sig á jóladagsmorgun. Það þarf ekki að kosta mikla fyrirhöfn að útbúa fallegan disk af mat fyrir þennan morgun. Gott er að muna mikilvægi þess að vera á náttfötunum uppi í rúmi að horfa á jólamynd fram eftir degi. Dæmi um það sem tilvalið er að nesta sig upp með í rúmið á þessum degi er: Ostur, egg, fíkjur, beikon, vínber, hnetur, ólífur, hummus, kex, jólanammistangir, kex og perur. Mælt er með kvikmyndinni Breakfast at Tiffany's með svona sælkeradiski, dúnmjúkum náttfötum og svalandi jóladrykk.