Pallíettur og glansefni eru sérstaklega áberandi núna í jólatískunni. Það eru þó ekki bara pallíettukjólar sem eiga upp á pallborðið núna heldur eru pallíettujakkar og pallíettubuxur víða á boðstólum.
Það eru þó ekki bara pallíettur sem hringja inn jólin því efni með glansandi þræði eru ríkjandi í jólatískunni 2019. Eins og svo oft áður skiptir máli að velja snið sem gerir sem mest fyrir okkur og dregur fram og ýtir undir helstu kosti. Svo þurfum við fyrst og fremst að gæta þess að velja föt sem okkur líður vel í. Ef fólk er frjálst og öruggt með sig er líklegra að það láti drauma sína rætast en þegar það er niðurnjörvað.