Fuzzy-stóllinn hefur notið mikilla vinsælda síðan hann var hannaður 1970.
Fuzzy-stóllinn hefur notið mikilla vinsælda síðan hann var hannaður 1970.
Sigurður Már Helgason hannaði og framleiddi Fuzzy-kollinn árið 1970. Um er að ræða smáan handsmíðaðan koll með alvöru íslenskri lambagæru ofan á og eru lappirnar í laginu eins og vatnsdropi.

Sigurður Már Helgason hannaði og framleiddi Fuzzy-kollinn árið 1970. Um er að ræða smáan handsmíðaðan koll með alvöru íslenskri lambagæru ofan á og eru lappirnar í laginu eins og vatnsdropi. Hugmyndin bak við stólinn var að gera hina fullkomnu fermingargjöf og kollurinn hitti beint í mark.

Kollurinn var framleiddur til 1990 en þá hætti Sigurður framleiðslu á stólnum. Það var svo aftur árið 2004 þegar Sigurður var að fara á eftirlaun sem hann hóf framleiðslu á kollinum aftur og hefur kollurinn rokselst, sérstaklega eftir hönnunarsýninguna Ómur í Þjóðminjasafninu sem haldin var af Steinunni Sigurðardóttur hönnuði árið 2005.