Almannarými Leikið á nýlegu verki eftir Guðjón Ketilsson á Klambratúni.
Almannarými Leikið á nýlegu verki eftir Guðjón Ketilsson á Klambratúni. — Morgunblaðið/Kristinn
Ráðstefna verður haldin á Kjarvalsstöðum á morgun, föstudag, um list í almannarými, þýðingu hennar og uppsprettu. Ráðstefnan hefst kl. 10 í fyrramálið og stendur til kl. 16.

Ráðstefna verður haldin á Kjarvalsstöðum á morgun, föstudag, um list í almannarými, þýðingu hennar og uppsprettu. Ráðstefnan hefst kl. 10 í fyrramálið og stendur til kl. 16.

Á ráðstefnunni verður rætt um list í almannarými og þýðingu hennar fyrir nærsamfélög og samfélög í heild. Sérstakur gaumur verður gefinn að uppsprettu slíkra verkefna, hvernig verða þau til, hvernig eru þau fjármögnuð, skipulag og utanumhald.

Aðalfyrirlesari er Tyra Dokkedahl, sjálfstætt starfandi sýningarstjóri og blaðamaður sem sérhæfir sig í list í almannarými. Áður vann hún hjá dönsku stofnuninni Bygningsstyrelsen og stýrði þar kaupum á listaverkum og fjármögnun listrænna verkefna.

Aðrir fyrirlesarar eru arkitektinn Steve Christer hjá Stúdíó Granda, Ágústa Kristófersdóttir, safnstjóri Hafnarborgar, listamennirnir Anna Hallin, Olga Bergmann, Carl Boutard og Ólöf Nordal ásamt Erni Baldurssyni frá Framkvæmdasýslu ríkisins. Ólöf Kristín Sigurðardóttir, safnstjóri Listasafns Reykjavíkur, heldur opnunarávarp og Sigurður Trausti Traustason stýrir ráðstefnunni.