Verðlaunaostur Elvíra Kovtún (t.h.) framleiðir ost í borginni Koroljov í Rússlandi. Hún og eiginmaður hennar hafa gert garðinn frægan í ostagerð.
Verðlaunaostur Elvíra Kovtún (t.h.) framleiðir ost í borginni Koroljov í Rússlandi. Hún og eiginmaður hennar hafa gert garðinn frægan í ostagerð. — AFP
Korojov. AFP. | Elvíra Kovtún bjó til fyrsta ostinn sinn í potti í eldhúsi sínu fyrir fjórum árum þegar hún var heimavinnandi húsmóðir.

Korojov. AFP. | Elvíra Kovtún bjó til fyrsta ostinn sinn í potti í eldhúsi sínu fyrir fjórum árum þegar hún var heimavinnandi húsmóðir. Hún er að mestu sjálflærð í ostagerð en fór á svo miklum kostum í faginu að hún og eiginmaður hennar ákváðu að gera áhugamálið að atvinnu með þeim árangri að þau urðu fyrst Rússa til að fá gullverðlaun í virtri keppni, Alþjóðlegu ostaverðlaununum, sem eru ígildi Óskarsverðlauna í ostagerð.

Hjónin fengu verðlaunin í október fyrir harðan „pesjernji“ – ost sinn. „Ég taldi ekki að þetta væri hægt. Núna tel ég allt hægt,“ sagði eiginmaður Elvíru, Vjatsjelav Kovtún, sem féll fyrir henni þegar þau voru í framhaldsskóla og á nú með henni þrjú börn.

Jókst um þriðjung

Velgengni fjölskyldufyrirtækisins er til marks um árangurinn sem rússneskir ostagerðarmenn hafa náð frá því að Vladimír Pútín Rússlandsforseti bannaði innflutning á matvælum frá Vesturlöndum árið 2014 eftir að þau gripu til refsiaðgerða gegn Rússum vegna hernaðar þeirra í Úkraínu. Margir Rússar höfðu orðið veikir fyrir frönskum og ítölskum ostum fyrir innflutningsbannið en rússnesk stjórnvöld notuðu tækifærið til að stuðla að aukinni framleiðslu í Rússlandi með því að styðja frumkvöðla sem vildu hefja framleiðslu á varningi sem var áður fluttur inn. Þetta bar þó ekki alltaf tilætlaðan árangur og margir rússneskir neytendur kvörtuðu yfir því að rússneski varningurinn væri dýrari og oft verri en innfluttu vörurnar. Öðru máli gegndi hins vegar um ostagerðina og framleiðsluna á öðrum mjólkurafurðum. Framleiðslan á ostum jókst um þriðjung á milli áranna 2013 og 2018 og hún er nú 670.000 tonn á ári, að sögn samtaka rússneskra mjólkurframleiðenda.

Pútín viðurkenndi í vikunni sem leið að hann hefði orðið „fremur áhyggjufullur“ út af refsiaðgerðum Vesturlanda í fyrstu en þróunin síðustu ár sýndi að þær hefðu orðið „efnahag Rússlands til framdráttar“.

Hundruð lítilla rjóma- og mjólkurbúa hafa verið stofnuð víða um landið og sum þeirra hafa fengið háa einkunn í öðrum löndum.

Gömul hefð endurvakin

Elvíra og Vjatsjeslav Kovtún eru fertug og stofnuðu ostagerðina á síðasta ári. Þau bjuggust ekki við því að ná svo skjótum árangri. Þegar Elvira hringdi í eiginmann sinn til að segja honum frá verðlaununum var hún grátandi. „Ég varð hræddur, hélt að eitthvað hræðilegt hefði gerst,“ sagði hann.

Vefsíða ostagerðarinnar hrundi vegna þess að áhuginn á henni var svo mikill eftir að skýrt var frá því að hún hefði fengið alþjóðlegu verðlaunin. Osturinn sem hjónin voru verðlaunuð fyrir seldist upp og ljóst er að þau anna ekki eftirspurn næstu mánuði.

Rúmlega 3.800 ostar frá 42 löndum voru lagðir fram til Alþjóðlegu ostaverðlaunanna í keppni sem fór fram í borginni Bergamo á Ítalíu. Enginn rússneskur ostur fékk verðlaun í keppninni á síðasta ári en fjórir rússneskir ostagerðarmenn fengu alls níu verðlaun í ár.

John Farrand, framkvæmdastjóri samtaka sem annast keppnina, sagði að Kovtún-hjónin hefðu sett „Rússland á alþjóðlega ostakortið“. „Þeir sem vinna til gullverðlauna í keppninni eru á meðal bestu ostagerðarmanna heimsins og aðeins lítill hluti ostanna ná svona langt,“ sagði Farrand.

Vjatsjeslav sagði að rússneskir ostagerðarmenn væru að endurvekja gamla rússneska hefð. „Við erum ekki að búa neitt nýtt til,“ sagði hann. „Rússar framleiddu osta í miklum mæli fyrir hundrað árum og fluttu þá út til Eystrasaltslanda og fleiri Evrópuríkja. Við erum að endurvekja uppskriftir forfeðra okkar.“