Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Engar breytingar verða gerðar á reglugerðum varðandi flugeldaframboð og flugeldasölu fyrir næstu áramót, samkvæmt upplýsingum sem Morgunblaðið fékk frá umhverfis- og auðlindaráðuneytinu. Ástæðan er sú að innkaup á flugeldum eru gerð með löngum fyrirvara og taka þarf ákvarðanir um breytingar á flugeldaframboði eða flugeldasölu áður en kemur að innflutningi. Slíkar ákvarðanir hafa ekki verið teknar.
Starfshópur umhverfis- og auðlindaráðuneytis, velferðarráðuneytis og dómsmálaráðuneytis vinnur nú að því að móta tillögur um hvernig draga megi úr neikvæðum áhrifum mengunar frá flugeldum á lýðheilsu og loftgæði. Ráðherrarnir sem skipuðu starfshópinn bíða eftir tillögum hans og munu byggja ákvarðanir sínar á þeim.
Umhverfis- og auðlindaráðuneytið hefur þegar óskað eftir því við Umhverfisstofnun að hún komi almennum upplýsingum og varnaðarorðum til almennings nú í desember. Einnig upplýsingum tengdum veðurfari og væntanlegum loftgæðum á þeim tíma sem heimilt er að skjóta upp flugeldum. Stofnunin komi þessum upplýsingum jafnframt á framfæri við hagsmunaaðila, m.a. Astma- og ofnæmisfélag Íslands og Samtök ferðaþjónustunnar, að því er segir í svari ráðuneytisins.