40% Björgvin Páll Gústavsson átti góðan leik í marki Skjern í gær.
40% Björgvin Páll Gústavsson átti góðan leik í marki Skjern í gær. — Morgunblaðið/Hari
Aalborg er með sex stiga forskot á toppi efstu deildar í danska handboltanum. Liðið vann Nordsjælland á útivelli í gær 32:25. Skoraði Janus Daði Smárason 4.
Aalborg er með sex stiga forskot á toppi efstu deildar í danska handboltanum. Liðið vann Nordsjælland á útivelli í gær 32:25. Skoraði Janus Daði Smárason 4. Björgvin Páll Gústavsson var með 40% markvörslu fyrir Skjern í sigri á SönderjyskE 30:25 og varði 16 skot. Elvar Örn Jónsson skoraði 5 mörk fyrir liðið. Arnar Birkir Hálfdánsson skoraði 2 og Sveinn Jóhannsson 1 fyrir gestina. Þá skoraði Óðinn Þór Ríkharðsson 6 mörk fyrir GOG sem vann Fredericia 39:36. Viktor Gísli Hallgrímsson varði 9 skot.