Guðrún María Gunnarsdóttir fæddist 17. maí 1992. Hún lést 29. október 2019. Útförin fór fram 13. nóvember 2019.

Elsku Guðrún, þú varst ótrúlega góð frænka, hugsaðir alltaf til okkar og vildir alltaf tala við okkur líka þegar þú hringdir í mömmu á facetime. Það var ótrúlega gaman að heimsækja þig í sumar og við elskuðum hvað þú varst alltaf fyndin og stríðin. Þú gafst þér tíma fyrir okkur þegar þú komst í heimsókn og við fundum hvað þér þótti vænt um okkur. Við munum að eilífu sakna þín.

Þínir litlu frændur,

Darri, Birkir og Ýmir.