Ánægð Greipur Gíslason og Edda Kristín Sigurjónsdóttir voru meðal gesta og hlýddu á félagana leika sér með orgelforleiki.
Ánægð Greipur Gíslason og Edda Kristín Sigurjónsdóttir voru meðal gesta og hlýddu á félagana leika sér með orgelforleiki.
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Davíð Þór Jónsson píanóleikari og spunameistari og Tómas Guðni Eggertsson organisti héldu á mánudag tónleika í Langholtskirkju undir yfirskriftinni Ertu búin/n að Bach-a fyrir jólin?
Davíð Þór Jónsson píanóleikari og spunameistari og Tómas Guðni Eggertsson organisti héldu á mánudag tónleika í Langholtskirkju undir yfirskriftinni Ertu búin/n að Bach-a fyrir jólin? Léku þeir með guðdómlegum hætti eigin útgáfur af tíu sálmaforleikjum og nokkrum dáðum verkum til eftir meistarann Johann Sebastian Bach. Félagarnir komu síðast fram fyrir áratug með þetta efni á aðventunni og fóru nú eins og þá á kostum og heilluðu gesti.