Ást Margir leita að fullkomnum maka.
Ást Margir leita að fullkomnum maka.
Blind stefnumót eru viðfangsefni hins stórskemmtilega breska þáttar First Dates. Þessi raunveruleikaþáttur hefur notið vinsælda allt frá 2013.

Blind stefnumót eru viðfangsefni hins stórskemmtilega breska þáttar First Dates. Þessi raunveruleikaþáttur hefur notið vinsælda allt frá 2013. Á veitingastað einum í miðborg Lundúna mæta vongóðir og spenntir einstaklingar og freista gæfunnar því mögulega gæti ástin kviknað yfir góðum mat. Fólkið er vandlega parað saman fyrirfram eftir óskum þess um hinn fullkomna maka. Það skemmtilega við þáttinn er að þarna má finna fólk á öllum aldri, af öllum stærðum og gerðum, öllum kynþáttum og kynhneigð skiptir engu. Því fá áhorfendur að sjá þverskurð mannlífsins, að minnsta kosti þverskurð bresks mannlífs.

Í lok hvers þáttar eiga pörin að ákveða hvort þau vilja hittast aftur eður ei.

Stefnumótin ganga misvel eins og gengur; sumir ná alls ekki saman en aðrir smellpassa. Ekki er leiðinlegra að horfa þegar stefnumótin eru vandræðaleg en eins og allir vita sem prófað hafa blind stefnumót getur allt gerst! En svo er það málið með neistann. Kviknar hann eða ekki? Það er stóra spurningin. Það skiptir öllu máli fyrir fólkið, en fyrir okkur sem heima sitjum er þetta að minnsta kosti hin besta skemmtun.

Ásdís Ásgeirsdóttir