Júní Ragnar Sigurðsson mætir Robert Lewandowski í Poznan.
Júní Ragnar Sigurðsson mætir Robert Lewandowski í Poznan. — Ljósmynd/Foto Olimpik
Knattspyrnusamband Íslands staðfesti í gær að A-landslið karla myndi mæta Pólverjum í vináttulandsleik í Poznan næsta sumar. Leikurinn fer fram þriðjudaginn 9.
Knattspyrnusamband Íslands staðfesti í gær að A-landslið karla myndi mæta Pólverjum í vináttulandsleik í Poznan næsta sumar. Leikurinn fer fram þriðjudaginn 9. júní, viku áður en Ísland mætir Portúgal í fyrsta leiknum á EM í Búdapest, fari svo að íslenska liðið komist í gegnum umspilið í mars og í lokakeppnina. Ísland hefur fimm sinnum tapað fyrir Pólverjum, síðast 4:2 í Póllandi 2015, og einu sinni gert jafntefli, 1:1 á Laugardalsvellinum í ágúst 2001.