Counter-Strike lið Astralis er flaggskip fyrirtækisins og er efst á styrkleikalista HLTV-fréttasíðunnar.
Counter-Strike lið Astralis er flaggskip fyrirtækisins og er efst á styrkleikalista HLTV-fréttasíðunnar.
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Pétur Hreinsson peturh@mbl.is Danska rafíþróttafélagið Astralis var fyrst slíkra félaga skráð á markað í síðustu viku. Markaðsvirðið nemur 6,3 milljörðum króna.

Sögulegur atburður átti sér stað í síðustu viku í First North-kauphöllinni, „litlu dönsku kauphöllinni“, eins og hún er jafnan kölluð í Danmörku, er fyrirtækið Astralis Group, sem m.a. á besta lið heims í tölvuleiknum Counter-Strike, var skráð á markað, fyrst slíkra félaga. Skráningin þótti vel heppnuð en heildarfjárhæð útboðsins nam 150 milljónum danskra króna, um 2,8 milljörðum króna. Samtals voru gefnir út tæplega 17 milljón nýir hlutir á genginu 8,95 DKK en núverandi eigendur munu áfram eiga 40 milljónir bréfa og þar með stærstan hluta í fyrirtækinu. Fyrstu dagana var gengi bréfanna nokkuð stöðugt en í gær féll það um tæp 18% og nam markaðsvirði félagsins við lokun markaða 6,3 milljörðum króna. Að sögn Nikolajs Nyholm, framkvæmdastjóra og eins stofnanda félagsins, horfir fyrirtækið til langs tíma og því var ekki farið í hefðbundnari fjármögnun fyrir félag á borð við Astralis Group. „Okkar ferðalag mun vara lengur en líftími venjulegra sjóða leyfir,“ sagði Nyholm í samtali við Berlingske fyrir skráninguna. „Við vorum til dæmis að fjárfesta í 80 milljónum (danskra) króna til þess að tryggja varanlega þátttöku í League of Legends-deild, sem við munum ávaxta á næstu, 10, 20 eða 30 árum. Það er langt úr fyrir líftíma vísisjóða (d. venturekapital fond) sem venjulega varir í fimm ár,“ segir Nyholm. Astralis á nú lið í ýmsum leikjum en samhliða skráningunni gaf fyrirtækið einnig út að það hefði hafið samstarf við ítalska knattspyrnuliðið Juventus sem teflir fram öflugu liði í knattspyrnutölvuleiknum Pro Evolution Soccer.

Einstakt tækifæri

Í samtali við ViðskiptaMoggann segir Ólafur Hrafn Steinarsson, stjórnarformaður Rafíþróttasamtaka Íslands, að fjárfestar horfi á mikla vaxtarmöguleika innan rafíþróttageirans. „Menn sjá fram á að fjölga aðdáendum og að ná til fleira fólks. Það eru margvísleg vaxtatækifæri á markaðnum. Við munum bæði sjá fleiri venjulega tölvuleikjaspilara verða að keppnisspilurum og í heild mun keppni í tölvuleikjum verða almennari. Það er enn þá mikill vöxtur sem getur átt sér stað þrátt fyrir að rafíþróttir hafi orðið mjög stórar á stuttum tíma,“ segir Ólafur Hrafn en um 450 milljónir manna taka reglulega þátt eða fylgjast með rafíþróttum á heimsvísu.

„Margir sjá gróðavon í þessum iðnaði. Síðan er þetta almennt séð gott tækifæri. Ef þú hefðir fengið tækifæri til þess að fjárfesta í Manchester United á sínum tíma hefðir þú örugglega stokkið á það. Fólk horfir fram á við og sér eflaust að þetta er einstakt tækifæri til þess að komast inn á mjög hratt vaxandi markað. Það er mjög rökrétt að gera þetta í gegnum vörumerki á borð við Astralis. Flest rafíþróttalið í heiminum í dag skila ekki hagnaði á meðan Astralis hefur á tímabili tekist að standa undir sér,“ segir Ólafur.

Vinningsformúla

Kasper Hvidt, markvörðurinn sem gerði garðinn frægan með handboltalandsliði Dana á árum áður, starfar sem yfirmaður íþróttamála hjá félaginu en að sögn Ólafs byggist hugmyndafræði Astralis á svipaðri hugmyndafræði og Rafíþróttaskólinn hér á landi, þar sem horft er til mikilvægis þess að liðið sé í góðu formi og hugsi um andlega og líkamlega heilsu.

„Þú ert ekki bara að fjárfesta í einhverju liði eða fyrirtæki sem gerir vel í einum leik heldur er þetta fyrirtæki sem er búið að finna ákveðna formúlu til þess að ná árangri í mörgum leikjum.“

Að sögn Ólafs grundvallast tekjumódel Astralis á auglýsingum og kostunum en að hans sögn eru tekjur á hvern aðdáanda mjög lágar í rafíþróttum í samanburði við aðrar íþróttir og þar liggur vaxtartækifæri.

„Sala á varningi hefur líka verið stór tekjupóstur. Flest rafíþróttalið sem komast hvað næst því að skila hagnaði eru öll með töluverðar tekjur sem koma frá sölu á varningi. Tekjumöguleikar fyrir rafíþróttalið munu aukast mjög á næstu árum og við munum sjá mikla aukningu í öllum leyfishafamálum líka. Í dag eru allar útsendingar fríar á meðan allir borga áskrift að enska boltanum. Fyrir tveimur árum var reiknað út að tekjur á hvern aðdáanda væru tólf sinnum hærri í amerískum fótbolta en í rafíþróttum. Þar var litið til sölu á varningi, miða á leiki og útsendingar. Og jafnvel þó að það yrði ekki einn nýr aðdáandi í heiminum gæti þessi iðnaður vaxið tífalt áður en þetta fer að verða fjárhagslega íþyngjandi fyrir fólk miðað við aðrar íþróttir. Vaxtartækifærin eru því vissulega mörg,“ segir Ólafur Hrafn.

Á Íslandi hefur rafíþróttaliðum fjölgað mjög að undanförnu. En er hugsanlegt að Íslendingar geti náð jafn langt og Danirnir í Astralis?

„Ef við náum að halda dampi á Íslandi og framþróunin verður á sama hraða og síðustu ár verðum við búin að koma okkar í fremstu röð í rafíþróttum innan skamms. Við erum að nálgast Dani sem hafa verið í þessu í 10-15 ár. Ef þetta heldur áfram svona næstu 4-5 árin trúi ég ekki öðru en að við munum eiga Íslendinga í fremstu röð í öllum helstu leikjum og sennilega íslensk félög sem hefðu jafnvel tækifæri til þess að skrá sig á markað. Það er allavega þangað sem við ættum að stefna. Það háir okkur kannski ekki eins mikið að vera á eyju í Atlantshafinu á internetinu og það getur gert þegar kemur að hefðbundnum íþróttum.“