Viðgerðum á Húsavíkurlínu 1 lauk í gærkvöld og komst hún aftur í rekstur, samkvæmt frétt Landsnets. Í gær var flutningskerfið á Vestfjörðum tengt Vesturlínu í Mjólká.

Viðgerðum á Húsavíkurlínu 1 lauk í gærkvöld og komst hún aftur í rekstur, samkvæmt frétt Landsnets. Í gær var flutningskerfið á Vestfjörðum tengt Vesturlínu í Mjólká. Skerðingu hjá notendum með skerðanlegan flutning var aflétt og vélar í varaaflstöðinni í Bolungarvík stöðvaðar. Tengivirkið í Hrútatungu í Hrútafirði komst aftur í rekstur í gærmorgun og sömuleiðis Sauðárkrókslína eftir hreinsun á tengivirki. gudni@mbl.is