Norðaustanátt verður sennilega ríkjandi til jóla, að því er blika.is spáði í gær. Frá Snæfellsnesi og suður og austur um í Öræfi verður nær úrkomulaust næstu tíu daga, golustrekkingur, vægt frost og stjörnubjart.
Norðaustanátt verður sennilega ríkjandi til jóla, að því er blika.is spáði í gær.
Frá Snæfellsnesi og suður og austur um í Öræfi verður nær úrkomulaust næstu tíu daga, golustrekkingur, vægt frost og stjörnubjart.
NA- og A-lands, frá Skaga og austur og suður fyrir miðja Austfirði, verður óvenju úrkomusamt. Mikið mun snjóa, sérstaklega frá Tjörnesi og austan Möðrudalsfjallgarðs. Stutt verður í slyddu í byggðum Austfjarða.