[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Áhugamálið ViðskiptaMogginn hefur fylgst vandlega með uppátækjum Bentley á 100 ára afmæli lúxusbílaframleiðandans.

Áhugamálið ViðskiptaMogginn hefur fylgst vandlega með uppátækjum Bentley á 100 ára afmæli lúxusbílaframleiðandans. Þannig fjallaði blaðið um forláta Bentley-golfkylfusett sem kom á markað fyrr á árinu, og var vitaskuld bæði rándýrt og í takmörkuðu upplagi.

Nú voru að bætast við Bentley-skíði, smíðuð af bandaríska fyrirtækinu Bomber. Settið kostar 3.750 dali sem er gjafverð miðað við golfkylfurnar sem mátti eignast fyrir fjórfalt hærri upphæð. Aðeins verða smíðuð 100 eintök, og vitaskuld eru þau skreytt að utan með 24 karata gullhúð. Mynstrið og lögunin sækja innblástur til hugmyndabílsins EXP 100 GT.

Skíðin eru ekki bara til þess gerð að hanga uppi á vegg til skrauts, heldur hafa þau verið smíðuð úr bestu fáanlegu efnum og hönnuð þannig að upplifun sé að renna sér á þeim. ai@mbl.is