Ásgeir Jónsson
Ásgeir Jónsson
Stefán E. Stefánsson ses@mbl.is Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri segir að ákveðinn biðleikur hafi falist í því að halda stýrivöxtum óbreyttum á síðasta vaxtaákvörðunarfundi ársins í liðinni viku.

Stefán E. Stefánsson

ses@mbl.is

Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri segir að ákveðinn biðleikur hafi falist í því að halda stýrivöxtum óbreyttum á síðasta vaxtaákvörðunarfundi ársins í liðinni viku. Bankinn vilji ekki missa vaxtatækið úr höndunum með því að lækka vextina of skarpt og að nú hafi þótt heppilegt að staldra við. Þá séu væntingar um að aukinn slagkraftur í umsvifum ríkisins muni hafa örvandi áhrif þegar kemur inn á nýtt ár. Í ítarlegu viðtali í ViðskiptaMogganum í dag segir Ásgeir að viðskiptabankarnir hafi að undanförnu endurverðlagt áhættuna í lánasöfnum sínum og það hafi í einhverjum tilvikum kallað á vaxtahækkanir. Bagalegt sé að það tosist á við tilburði Seðlabankans til að lækka vaxtastig í landinu.

„Ef vextir til heimila og fyrirtækja eru að hækka vegna hækkandi vaxtamunar þá gætum við þurft að bregðast við því,“ segir Ásgeir og bendir á að enn hafi bankinn borð fyrir báru í þeim efnum. Hann segir ekki tímabært að lækka eiginfjárkvaðir á bankana sem þó munu hækka nú um áramótin. Hann viðurkennir þó að með sameiningu Seðlabanka og Fjármálaeftirlits aukist líkur á að samhæfa megi verkefni sem snúi að peningastefnunni og fjármálastöðugleika.

Nú um áramót fær Seðlabankinn í hendur ný verkfæri til þess að grípa inn í starfsemi bankakerfisins ef horfi í óefni.

„...ef ríkið selur bankana, sem er æskilegt enda óheppilegt að ríkið sé með alla þessa fjármuni bundna í bankastofnunum, þá munum við ekki sýna neina linkind. Það er lærdómur sem við höfum dregið, að miklu fyrr yrði gripið inn í en reyndin var áður.“