Á Bessastöðum Árni Árnason og Helena Árnadóttir færðu Guðna Th. Jóhannessyni forseta eintak af bókinni.
Á Bessastöðum Árni Árnason og Helena Árnadóttir færðu Guðna Th. Jóhannessyni forseta eintak af bókinni.
Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Barnabókin Friðbergur forseti eftir Árna Árnason hefur fengið góða dóma. „Viðtökurnar hafa verið mjög góðar og framar öllum vonum,“ segir höfundurinn, en Bjartur gefur út.

Steinþór Guðbjartsson

steinthor@mbl.is

Barnabókin Friðbergur forseti eftir Árna Árnason hefur fengið góða dóma. „Viðtökurnar hafa verið mjög góðar og framar öllum vonum,“ segir höfundurinn, en Bjartur gefur út.

Þetta er fyrsta ritverk Árna. „Ég hef lengi átt mér þann draum að skrifa bók,“ segir hann. Einu sinni sem oftar hafi hann endurmetið stöðuna og lífið og komist að þeirri niðurstöðu að tími væri til kominn að láta verkin tala á kostnað drauma í þessu efni. „Ég átti og rak auglýsingastofu í átta ár og hluti af ákvörðuninni var að selja fyrirtækið, breyta um hraða og vettvang og gefa mér tóm til þess að sinna ritstörfum.“

Valið um hvernig bók hann vildi skrifa var auðvelt. „Aldrei er nóg af barnabókum og auk þess langaði mig til þess að skrifa bók fyrir dóttur okkar Kolbrúnar á meðan hún væri á þessum aldri og njóta hennar liðsinnis.“ Helena, sem verður 10 ára í febrúar, hjálpaði föður sínum að móta ákveðnar hugmyndir og gaf öllum sögupersónum nafn. „Hún lagði líka aðeins línurnar í sambandi við hvað sagan ætti að fjalla um í grunninn,“ segir Árni.

Helena er mikill lestrarhestur og það ýtti enn frekar undir Árna að skrifa barnabók. „Frá því hún var pínulítil höfum við alltaf lesið mikið. Áður las ég fyrir hana og eftir að hún varð læs höfum við oft legið uppi í rúmi og lesið hvort sína bókina. Ég hef séð hvað lesturinn gefur henni mikið og gerir mikið fyrir hana og það hefur aukið enn frekar trú mína á lestri sem hugarþjálfun og uppeldistóli. Það er enn ein ástæða þess að barnabók varð fyrir valinu.“

Skrif Árna til þessa hafa að miklu leyti snúist um auglýsingaskrif.

Geymdur en ekki gleymdur

Hann segist hafa skrifað mikið fyrir „skúffuna“ á menntaskólaárunum á Akureyri og þá þegar hafi hann átt sér þann draum að eiga tíma til þess að skrifa. Brauðstritið hafi komið í veg fyrir það. „Ég lagði drauminn á hilluna en hann lét mig samt aldrei í friði. Um árabil fólst vinnan í því að skapa, en það er kvóti á sköpun eins og öðru og þegar vinnan snýst um það að vera skapandi og sniðugur er ekki mikið eftir til að geta skapað þegar vinnudeginum lýkur. Þess vegna þurfti ég að gera breytingu á daglegu lífi til þess að koma bókinni á koppinn.“

Friðbergur forseti fjallar um krakka sem berjast gegn ranglæti og fyrir betra samfélagi. „Boðskapurinn í bókinni er fyrst og fremst sá að við eigum að vera óhrædd við að hlusta á hjarta okkar og berjast gegn ranglæti,“ segir Árni. Hann bætir við að skrifin og kynning á bókinni í skólum og víðar sé það skemmtilegasta sem hann hafi gert. „Ég er þegar byrjaður á því að móta framhald af sögunni og svo eru ýmis fleiri verkefni á teikniborðinu,“ segir hann.