Þorvaldur Kristján Sverrisson fæddist 4. ágúst 1954. Hann lést 16. nóvember 2019.

Útför Þorvalds fór fram 28. nóvember 2019.

Við veraldleg leiðarlok er margs að minnast. Þau óteljandi skipti sem pabbi skutlaði mér upp á flugvöll og sótti mig þangað eru aðeins toppurinn á þeim ísjaka. Frá honum hef ég ferðaáhugann og ekki hefði ég fengið að sjá nema brot af því sem ég hef fengið að sjá ef ekki hefði verið fyrir allan stuðninginn frá honum og mömmu. Ég hefði bara viljað óska þess að pabbi hefði fengið sömu tækifæri og ég til að sjá heiminn en víða fór hann þó samt og naut þess í botn. Nú hefur pabbi fengið frið frá veikindum sínum og getur flakkað um án fyrirhafnar auk þess að synda og hjóla eins og honum þótti svo ljúft áður en veikindin ágerðust. Aldrei mun ég gleyma honum og alltaf minnast hans með þakklæti fyrir allt sem hann gaf mér og gerði fyrir mig en fyrst og síðast fyrir að vera sá faðir sem ég vildi óska að öll börn ættu.

Baldur.