Jón Björnsson, Nonni, fæddist á Ísafirði 7. september 1960. Hann lést á heimili sínu í Kópavogi 11. desember 2019. Nonni var sonur hjónanna Björns Magnúsar Egilssonar og Kristínar Jónsdóttur. Systkini hans eru Rannveig Björnsdóttir, maki Hrafn Snorrason, og Egill Kristján Björnsson, maki Helga Lísa Jónsdóttir.

Eftirlifandi eiginkona Nonna er Jóhanna Agnes Logadóttir, Hanna, foreldrar Hönnu eru Logi Magnússon og Árný Þóra Hallvarðsdóttir.

Synir Nonna og Hönnu eru Arnór Gauti Jónsson, sambýliskona Björk Jónsdóttir, sonur þeirra er Styrmir Nói Gautason, og Atli Fannar Jónsson, sambýliskona María Rós Gústavsdóttir.

Eins og önnur börn byrjaði Nonni ungur að vinna, hann tíndi ber heilu dagana á haustin til að selja gömlu konunum, hjálpaði rækjuköllunum við uppskipun og fékk fisk í staðinn sem hann fór með heim og til vina, strax byrjaður að draga björg í bú. 12 ára fór hann að vinna hálfan daginn í rækjuverksmiðjunni, síðan tók Íshúsið við. Þegar Nonni var að vinna í Íshúsinu æfði hann skíðagöngu og var á hillu með þeim bestu. Þá fékk hann að þrífa bíla yfirmanna og vinna önnur auðveldari störf og þeir leyfðu Nonna síðan að æfa í vinnutímanum þegar viðraði.

Nonni lærði til málara hjá Hans Georg Bæringssyni, málarameistara á Ísafirði, og útskrifaðist frá Iðnskólanum á Ísafirði 1985.

Nonni og Hanna fluttu til Reykjavíkur 1985 þar sem hann vann fyrst hjá Ingvari Á. Guðmundssyni málarameistara en stofnaði síðar Málningarþjónustu Reykjavíkur í félagi við Arnar Óskarson og Samúel Kárason.

Nonni og Arnar slitu samstarfinu eftir andlát Samúels og eftir það starfaði Nonni sjálfstætt.

Útför hans fer fram frá Vídalínskirkju í Garðabæ í dag, 20. desember 2019, klukkan 13.

Í dag verður bróðir minn, Jón Björnsson, jarðsettur. Hann varð bráðkvaddur heima hjá sér 11. des. Ég vil nota tækifærið og kveðja hann á minn hátt og geri það með þessu ljóði sem ég samdi.

Bróðurkveðja

Kæri bróðir, í dag fékk ég þær fréttir að þú værir dáinn

Það voru ótímabærar fréttir

Ekki strax ekki þú

Nei

Losti og doði eru orðin

Hvað get ég sagt?

Ekkert eins og er

Ég er eins og aðrir sár og sorgmæddur

Þú varst stóri bróðir minn

Hjálpaðir mér og studdir

Stríddir og meiddir

En þú varst bróðir minn

Við tengdumst bróðurböndum

Þau bönd voru órjúfanleg

Saman gátum við verið í þögninni

Það var alveg nóg

Nú eru böndin rofin

Þú ert farinn þína leið

Ég mun halda áfram hér

Þannig er lífið

Kæri bróðir nú kveð ég þig

Því miður alltof fljótt

Ég mun sakna þín

Þú lifir í minningu minni

Far vel, kæri bróðir

Egill Kristján Björnsson.

Fallin er frá fyrir aldur fram elsku bróðir minn Jón Björnsson. Höggið er þungt og sorgin er mikil. Við sem eftir sitjum minnumst góðs manns.

Uppvaxtarárin okkar á Ísafirði eru lituð af útiveru og leik og engin lognmolla kringum elsku Nonna. Endalausar minningar koma upp í hugann um bernskubrek sem kalla fram bros og hlýju til fjörkálfsins Nonna. Við vorum náin en hann hafði einstaklega gaman af að stríða systur sinni og ég skal alveg viðurkenna að stundum var mér um og ó.

Við lærðum fljótt að elska náttúruna í kringum okkur og þá bakteríu fengum við frá pabba. Stuttar ferðir til fjalla, upp að Nónvatni, inn í skóg og í berjamó.

Nonni heillaðist ungur af skíðum og brölti upp í Stórurð og skíðaði þar á svigskíðum. Um 12 ára aldur fór hann með pabba að fylgjast með gönguskíðamóti inn í Tungudal og fékk lánuð stóru skíðin hans pabba og skellti sér einn hring og þar kviknaði áhuginn á gönguskíðum og átti hann farsælan gönguskíðaferil. Knattspyrnan var heldur ekki langt undan og spilaði hann með Vestra og ÍBÍ í einhver ár.

Nonni lærði málaraiðn hjá Georgi Bæringssyni á Ísafirði og starfaði alla tíð sem málarameistari. Hann var góður í sínu fagi og hjálpsamur sínum þegar kom að því að fá aðstoð við málum, málaði loftin hjá mér eins og ekkert væri í einu hádegishléinu.

Hönnu sinni kynntist hann ungur og var lífshlaup þeirra saman orðið hátt í fjörtíu ár. Elsku Hanna það er sárt að kveðja lífsförunaut sinn og ástvin til margra ára. Þau eignuðust gullmolana sína tvo, Gauta og Atla, og gleðin mikil þegar fjölskyldan stækkaði og eru tryggðaböndin sterk milli fjölskyldna okkar. Nonni hafði yndi af því að veita og elda góðan mat og eigum við margar yndislegar minningar úr bústað foreldra minna og þeirra og á heimilum okkar. Fjölskylda mín og foreldrar okkar áttum alltaf griðastað á heimili þeirra í suðurferðum okkar þegar á þurfti að halda, þar var alltaf pláss og upp í hugann koma myndir af ótal samverustundum, jólum, afmælum, bústaðaferðum og ekki þurftum við mikinn undirbúning, vera saman og gleðjast.

Nonni var náttúrubarn og elskaði vestfirsku fjöllin, rjúpnaferðir og Mjóafjörðinn sinn í fallega djúpinu. Gönguferðir og útivera með hundunum sínum átti einnig vel við hann.

Líttu til fjalls þar fjallabunur

fannhvítar leika ár og síð.

Heyrast í fjarska fossadunur

í fagurlaufgaðri skógarhlíð.

Hverju vorblærinn hvíslar að

heyrist svo glöggt á þessum stað.

(Páll Ólafsson)

Elsku Hanna, Gauti, Björk, afagullið Styrmir Nói, Atli og María, missir ykkar er mikill og hugur minn og minna er hjá ykkur. Við minnumst elsku Nonna með sorg í hjarta, en jafnframt hlýju og þakklæti fyrir allar góðu stundirnar. Guð veri með ykkur.

Þín systir,

Rannveig.

Hann Nonni okkar, kletturinn og gleðigjafinn sem hugsaði svo vel um fólkið sitt, er látinn.

Við fjölskyldan hittum hann fyrst á Ísafirði þar sem hann var með börnum Agnesar systur í leik.

Það voru mikil hlátrasköll og ég spurði Agnesi; hver er þetta? Þetta er hann Jón Björnsson. Ég spyr hann; „Hvað starfar þú?“ „Ég vinn í fiski.“ Ég svara í gríni: „Ef þú ætlar að líta eitthvað á dóttur mína þá þarftu að læra eitthvað.“ Ári seinna var Hanna að snatta með bræðrunum Harald, Hallvarði og Nonna í Reykjavík. Þá hittir Nonni móðursystur sína og tekur um herðarnar á Hönnu og segir við Nönnu frænku: „Þetta verður konan mín“. Stuttu seinna kom fyrsti kossinn og Nonni hringdi í mig um svipað leiti og sagði mér að hann væri komin á samning. „Það er gott og hvað ertu að læra?“ „Að verða málari.“ Ég var ánægð með það. Hanna Jón giftu sig nokkru síðar og giftingardagurinn 17. september 1983 var fallegur dagur. Hjónin eignuðust tvo glæsilega drengi, þá Arnór Gauta og Atla Fannar, sem létu þó bíða eftir sér.

Þegar Hanna var í námi á Bifröst kom Nonni einn daginn í heimsókn til okkar Loga og sýndi okkur auglýsingu um að Djúpmannabúð við Mjóafjörð væri til sölu, hann sagðist hafa áhuga að kaupa en vildi ekki taka af skarið nema við myndum samþykkja að styðja við þau í rekstrinum. Við gerðum það og störfum bæði hjónin með þeim í tvö sumur, sem voru strembin en dásamleg í senn. Djúpmannabúð hefur verið sælureitur fjölskyldunnar síðan.

Eftir að Hanna lauk mastersnáminu á Bifröst ákváðu þau að flytja á neðri hæðina á Álfhólsveginum í sama húsi og við Logi búum í. Það sambýli hefur verið einstaklega farsælt og ánægjuleg samvinna með gagnkvæmri virðingu. Það verður mikill og sár söknuður af Jóni í okkar litla samfélagi.

Takk fyrir samveruna, elsku Nonni okkar.

Árný Þóra Hallvarðsdóttir

og Logi Magnússon.

Skaparinn var ekki sparsamur þegar hann úthlutaði ungviðinu á Ísafirði vaskleik á sjötta og sjöunda áratug síðustu aldrar. Slíkur var fjöldi afreksmanna. Á veturna voru það skíðin, sundið, að ógleymdu náminu og á sumrin var það fótboltinn samhliða strembinni sumarvinnu. Þeir fjölhæfustu létu sig ekki muna um að skara fram úr á flestum þessum sviðum. Í þeim hópi var Jón Björnsson.

Nonni ólst upp í efri enda þeirrar merkilegu götu Fjarðarstrætis, sem tilheyrði bæði neðri og efri bæ. Hann var því efribæjarpúki og talsvert fyrirferðarmikill sem slíkur. Vestrapúki í þokkabót. Skipaði sér í fremstu röð hvort sem hann skæddist skíða- eða fótboltaskóm. Skíðagöngumenn á Ísafirði eru þeirrar gerðar að þeir eldast ekki og eru, í það minnsta að eigin sögn, upp á sitt besta alla ævi. Sem göngumaður var Nonni því löngum í hópi sér miklu eldri manna og tók þar margan slaginn. Á landsvísu atti hann meðal annars kappi um árabil við þá Konráðssyni frá Ólafsfirði, Jón og Gottlieb. Þær keppnir skiluðu honum í landsliðið.

Undir lok áttunda áratugarins voru knattspyrnumenn á Ísafirði að nálgast fremstu röð og þar munaði svo sannarlega um Nonna. Hann var einn af lykilmönnum liðs ÍBÍ sem vann sæti í efstu deild haustið 1981 og lék þar árin 1982 og 1983. Hann var traustur varnarmaður. Hvort sigurleikurinn við Fram á Laugardagsvellinum haustið 1982 var hans besti leikur skal ósagt látið en mikið óskaplega lék hann vel þann daginn.

Í félagsskap skar hann sig úr. Þar fór spaugarinn fremstur. Hnyttnin einstök og ógleymanleg. Slíkir hæfileikar eru nauðsynlegir og hollir hverjum keppnishópi, hvort sem vel gengur eða illa. En hann var líka djúpur og alvörugefinn, sem tók hlutverk sitt mjög alvarlega. Stríðnispúki sem þrátt fyrir allt mátti ekkert aumt sjá.

Íþróttum fylgja skrítnir dómar og furðulegar skiptingar. Það er með öllu óbærilegt að Nonni Björns hafi lokið leik. Seinni hálfleikur rétt hafinn. Eftir situr minningin um traustan og góðan félaga.

Jóhönnu, strákunum þeirra, foreldrum hans, ættingjum og vinum sendum við innilegar samúðarkveðjur.

F.h. fótboltapúka á Ísafirði,

Halldór Jónsson.

Við bræðurnir kynntumst Ísfirðingnum og afreksmanninum í skíðagöngu og fótbolta, Jóni Björnssyni, þegar við vorum átta og fimmtán ára gamlir þegar Hanna systir okkar trúlofast Nonna. Síðan eru liðin mörg ár.

Við og Nonni höfum margt brallað saman í gegnum árin, það er sárt að hugsa til þess að ekki bætist frekar í minningasafnið. Hanna og Nonni bjuggu framan af á Ísafirði en fluttu síðar suður þar sem Jón haslaði sér völl sem málarameistari við góðan orðstír þar sem hann þjónustaði sömu stóru viðskiptavinina áratugum saman. Nonni var stórhuga og kraftmikill og vann hratt og ákveðið og við bræðurnir tókum oft í pensil með málarameistaranum og af Nonna lærðum margt um líf og starf sem gagnast hefur okkur alla tíð. Jón kom nefnilega úr allt öðru umhverfi, úr sjávarplássi, þar sem lífið byrjaði miklu fyrr og með meiri þunga og ábyrgð en hjá okkur bræðrunum af mölinni fyrir sunnan.

Vestfirðir höfðu sterk ítök í Nonna alla tíð og hann leitaði mikið til fjölskyldunnar sinnar en ekki síður í náttúruna við djúp. Þegar greiðasölustaðurinn Djúpmannabúð í Mjóafirði var settur í sölu fyrir allnokkrum árum stukku Jón og Hanna til og keyptu þennan einstaka stað og ráku með vinnu og námi í nokkur sumur en hafa á seinni árum haft þetta sem orlofs- og griðastað. Þetta skemmtilega ævintýri varð til þess að við bræðurnir og fjölskyldur fengum að kynnast einstakri náttúrufegurð djúpsins bæði að vetri og sumri. Það eru ómetanlegar minningar tengdar kjarri vöxnum Mjóafirðinum þar sem fuglalíf og friðsæld er alltumlykjandi. Frá þessum stað á stórfjölskyldan margar góðar minningar.

Fátt var Hönnu og Nonna betur lagið en að gleðja í gegnum munn og maga, Nonni var alltaf höfðingi heim að sækja og það var alltaf veitt vel í mat og drykk og gleði ríkjandi. Jón var mikill búmaður og það var alltaf matur í kistunni á heimilinu og sumt af því veitt af honum annað kom víða að, eins og jólahangikjötið úr Svansvík.

Hann var alinn upp við skotveiðar af Bjössa föður sínum sem ungur maður og síðar sótti Nonni alltaf í fjöllin þegar haustaði með hund sér við hlið.

Nonni var mikill dýravinur og hundarnir hans voru óaðskiljanlegur hluti af honum. Hundategundin írskur setter fangaði hjarta hans og Vaskur lifir nú eiganda sinn. Þeir tveir voru miklir félagar og iðulega þegar komið var í heimsókn til Hönnu og Nonna sat hann í stólnum sínum með hundinn í fanginu. Nonna var annt um smádýrin sem urðu á vegi hans, allir matarafgangar voru settir út í garð fyrir þau. Hvert sem hann fór hændi hann að sér dýr því ávallt átti hann eitthvað gott fyrir þau að borða.

Nú er þessi góði drengur fallinn frá, við sem eftir sitjum eigum fjölda góðra minninga um hugumstóran og vandaðan Ísfirðing

Örn Logason og Hallvarður Einar Logason.

Hvernig getur maður skrifað minningargrein um mann sem fellur frá á besta aldri þegar dauðinn virðist víðsfjarri?

Jón Björnsson var liðlega tvítugur þegar hann réðst til fyrirtækis okkar, Pensilsins á Ísafirði, snemma á níunda áratugnum til að læra málaraiðn hjá undirrituðum. Þau ár eru uppfull af góðum minningum, gleði og gamni með góðum samstarfsfélögum og vinum. Jón vann hjá fyrirtækinu og lauk sveinsprófi með sóma, hann var vandvirkur, fylgdist vel með nýjungum, var góður fagmaður og fljótur að taka ákvarðanir. Hann vann hjá fyrirtækinu þar til hann fluttist til Reykjavíkur og stofnaði síðar Málningarþjónustu Reykjavíkur ásamt góðum vini okkar allra, Samúel Kárasyni fyrrverandi starfsmanni Pensilsins, sem féll líka frá langt fyrir aldur fram. Jón var drengur góður og brást ekki vinum sínum þegar á reyndi.

Við kveðjum hann með söknuði og eigum eftir að sakna góðra stunda með honum fyrr og síðar.

Okkar dýpstu samúð sendum við Hönnu og börnum þeirra og fjölskyldunni allri og þökkum fyrir samveru og samstarf liðinna ára.

Georg, Lóa og fjölskylda.