Reynslusigling Þinganes er á heimleið.
Reynslusigling Þinganes er á heimleið. — Ljósmynd/Brunes Foto/Vard
Ný skip sem komið hafa til landsins á árinu og eru væntanleg á næstu vikum kosta alls um 13 milljarða króna tilbúin á veiðar. Þar vega þyngst smíðar á sjö systurskipum í Noregi, en skipin hafa komið hvert af öðru frá því um miðjan júlí.

Ný skip sem komið hafa til landsins á árinu og eru væntanleg á næstu vikum kosta alls um 13 milljarða króna tilbúin á veiðar. Þar vega þyngst smíðar á sjö systurskipum í Noregi, en skipin hafa komið hvert af öðru frá því um miðjan júlí. Síðasta skipið í þessu raðsmíðaverkefni er Þinganes SF sem er væntanlegt til Hafnar í Hornafirði á morgun.

Í smíðum eru tvö stór uppsjávarskip og samið hefur verið um smíði á frystitogara fyrir Nesfisk í Garði. Samanlagt kosta þessi þrjú skip um 13 milljarða. Óljóst er hvort nýtt stórt frystiskip Brims hf. kemur til Íslands eða verður selt til Grænlands.

Samherji áformar að taka nýtt og fullkomið fiskiðjuver á Dalvík í notkun síðari hluta vetrar. Brim hyggst gera miklar endurbætur á fiskiðjuveri sínu á Norðurgarði næsta sumar og Skinney-Þinganes heldur áfram breytingum og endurbótum í vinnslunni. 200 mílur 28-29