[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Flosi Eiríksson er fæddur 20. desember 2019 á Landspítalanum í Reykjavík en foreldrar hans bjuggu í Kópavogi. Þau byggðu hús í vesturbænum í Kópavogi 1950, þar sem þau bjuggu alla tíð. Flosi gekk í Kársnesskóla og síðan í Þinghólsskóla, á...

Flosi Eiríksson er fæddur 20. desember 2019 á Landspítalanum í Reykjavík en foreldrar hans bjuggu í Kópavogi. Þau byggðu hús í vesturbænum í Kópavogi 1950, þar sem þau bjuggu alla tíð.

Flosi gekk í Kársnesskóla og síðan í Þinghólsskóla, á gagnfræðastigi. Þaðan fór hann í Menntaskólann í Kópavogi og útskrifaðist sem stúdent þaðan 1989. „Ég var virkur í félagslífi í menntaskóla, var meðal annars formaður nemendafélagsins í þriðja bekk. Ég keppti með félögum mínum í Gettu betur, spurningakeppni framhaldsskólanna, og unnum við keppnina 1989. Núna er einmitt verið að endursýna gamlar viðureignir sem er aðeins ógnvekjandi.

Faðir minn var brúarsmiður og mamma var ráðskona í flokknum, ég var með þeim á sumrin og fór svo í sveit, fyrst til ömmu minnar sem bjó í Fossgerði í Berufirði og síðan lengst af hjá móðurbróður mínum, Sigurði, á Karlsstöðum sem var næsti bær. þar var afar gott og lærdómsríkt að vera. Ég vann síðan í brúarvinnu mörg sumur og var á samningi hjá pabba.“ Flosi fór svo í Iðnskólann eftir stúdentspróf og tók sveinspróf í húsasmíði 1993. Hann starfaði svo sem smiður hjá ýmsum verktökum og fyrirtækjum hér á höfuðborgarsvæðinu.

„Í menntaskóla gekk ég í Æskulýðsfylkinguna og Alþýðubandalagið í Kópavogi og fór á kaf í það starf, m.a. sem formaður félagsins. Ég var fyrst á framboðslista til bæjarstjórnarkosninga 1990 og tók sæti í nefnd hjá bænum, 1994 var ég í 3. sæti og var varabæjarfulltrúi það tímabil. 1998 var ég síðan oddviti sameiginlegs framboðs, Kópavogslistans, við fengum fjóra fulltrúa og ég tók sæti í bæjarráði og fjölmörgum nefndum bæjarins. Ég sat síðan í bæjarstjórn til 2010. Á þessum árum var ég í fjölmörgum nefndum og stjórnum, m.a. varaformaður stjórnar Almenningsvagna bs. Haustið 1990 var ég ráðinn, óvænt, sem framkvæmdastjóri Alþýðubandalagsins, flokkurinn var þá í ríkisstjórn, Ólafur Ragnar fjármálaráðherra og mikið að gerast í stjórnmálum. Það var mikil reynsla fyrir ungan mann að sitja þingflokksfundi á þessum tíma með því fólki sem skipaði þingflokkinn á þessum tíma. Ég var í þessu starfi fram á árið 1992 og fór þá að smíða.“

Með smíðum var Flosi svo í bæjarmálum og flokkstarfi, sat í framkvæmdastjórn Samfylkingarinnar og fleira. Hann fór svo í nám með vinnu í Háskólann í Reykjavík og útskrifaðist sem viðskiptafræðingur þaðan 2006. Þá fór hann að vinna hjá KPMG, á fyrirtækjasviði við margvíslega ráðgjöf, þar vann hann til 2010, síðast með sérstaka áherslu á tengsl og viðskiptaþróun. Þaðan fór Flosi til Íslandsstofu sem verkefnastjóri, að styðja við fyrirtæki í útflutningi. Hann var síðan ráðinn framkvæmdastjóri Starfsgreinasambands Íslands í desember 2018. „Það er gríðarlega áhugavert og fjölbreytt starf með góðu fólki. Strax á fyrstu vikunum var ég kominn á kaf í kjaraviðræður og Björn formaður og aðrir hafa sýnt mér mikið traust og trúnað.

Eftir að ég hætti í bæjarstjórn tók ég mér svolítið hlé frá félagsstörfum, fyrir utan að vera formaður skólanefndar MK, míns gamla skóla. Börnin mín voru svo að æfa fótbolta með Breiðabliki og ég tók sæti í stjórn knattspyrnudeildar Breiðabliks í byrjun árs 2017. Mér finnst gaman að vera með fólki!

Ég les mjög mikið og alls konar efni, hef afar gaman af alls konar útibrölti, skotveiðum með félögum mínum og hef undanfarin ár farið á hreindýraveiðar. Það er sérstaklega gaman að vera í útibröltinu fyrir austan en við systkin og móðursystir okkar eigum saman Fossgerði þar sem ég var í sveit og reynum að halda því þannig að það sé okkur öllum til sóma.“

Fjölskylda

Eiginkona Flosa var Nína Björk Sigurðardóttir, f. 19. ágúst 1972, d. 30. október 2013, viðskiptafræðingur. Foreldrar hennar eru hjónin Sigurður Ólafur Kjartansson, f. 9.2. 1946, byggingarfræðingur og Eyrún Gunnarsdóttir, f. 19.2. 1947, húsmóðir. Þau eru bús. í Kópavogi.

Sonur Flosa og Katrínar Júlíusdóttur er Júlíus Flosason, f. 1.3. 1999. Börn Flosa og Nínu Bjarkar eru Eyrún Flosadóttir, f. 11.3. 2003, Kári Flosason, f. 5.10. 2005, og Eiríkur Flosason, f. 7.8. 2007.

Systkini Flosa eru Gísli Eiríksson, f. 12.9. 1950, verkfræðingur hjá Vegagerðinni, bús. á Ísafirði; Björg Eiríksdóttir, f. 20.12. 1953, kennari, bús. í Kópavogi; Þorleifur Eiríksson, f. 24.3. 1956, doktor í dýrafræði, bús. í Reykjavík; Ívar Eiríksson, f. 13.9. 1963, forritari, bús. í Kópavogi; Elín Eiríksdóttir, f. 20.12. 1969, bókasafns- og upplýsingafræðingur, bús. í Kópavogi. „Við Elín erum tvíburar, eins og sjá má á dagsetningum. Það eru forréttindi að hafa frá fyrstu tíð leikfélaga og vin, sem getur leiðrétt æskuminningar nú eða munað það sem maður vill helst gleyma.“

Foreldrar Flosa voru hjónin Eiríkur Jónas Gíslason, f. 9.8. 1920, d. 20.4. 1997, húsasmíðameistari og brúarsmiður hjá Vegagerð ríkisins, og Þorgerður Þorleifsdóttir, f. 28.6. 1928, d. 26.2. 2014, húsmóðir, ráðskona og dagmamma.