— AFP
Þessi slökkviliðsþyrla reyndi að hemja skógarelda sem geisa nú í nágrenni borgarinnar Sydney í Ástralíu.

Þessi slökkviliðsþyrla reyndi að hemja skógarelda sem geisa nú í nágrenni borgarinnar Sydney í Ástralíu. Hitamet, sem sett var í fyrradag, var slegið í gær, og lýstu yfirvöld í New South Wales-fylkinu yfir neyðarástandi vegna hitabylgjunnar og eldanna í gær.

Veðurfræðingar vara við því að hitabylgjan muni halda áfram og að hitastigið muni jafnvel hækka enn meira.