Magni annar og Magni fimmti. Myndin var tekin þegar Magni V. færði nafna sinn að Slippnum, þar sem báturinn var hreinsaður og málaður. Ný vél verður sett í bátinn.
Magni annar og Magni fimmti. Myndin var tekin þegar Magni V. færði nafna sinn að Slippnum, þar sem báturinn var hreinsaður og málaður. Ný vél verður sett í bátinn. — Morgunblaðið/Hari
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Fyrsti dráttarbátur Reykjavíkurhafnar kom til landsins 1928 og fékk nafnið Magni. Síðan þá hefur það verið hefð hjá höfninni að skíra öflugasta dráttarbátinn því nafni. Eftir áramótin er nýr Magni væntanlegur í flotann. Báturinn var smíðaður í Víetnam og er langöflugasti dráttarbátur sem Reykjavíkurhöfn/Faxaflóahafnir hafa eignast. Stærri skip hafa kallað á að öflugri dráttarbátar verði til taks.

Sigtryggur Sigtryggsson

sisi@mbl.is

Fyrsti dráttarbátur Reykjavíkurhafnar kom til landsins 1928 og fékk nafnið Magni. Síðan þá hefur það verið hefð hjá höfninni að skíra öflugasta dráttarbátinn því nafni. Eftir áramótin er nýr Magni væntanlegur í flotann. Báturinn var smíðaður í Víetnam og er langöflugasti dráttarbátur sem Reykjavíkurhöfn/Faxaflóahafnir hafa eignast. Stærri skip hafa kallað á að öflugri dráttarbátar verði til taks.

Nýr Magni lagði af stað frá Víetnam til Íslands hinn 19. október sl. og var væntanlegur til Rotterdam fyrir helgina.

Magni mun svo leggja í hann til Íslands strax eftir áramótin og yrði þá í Reykjavík fyrir miðjan janúar. Báturinn hefur þá lagt að baki rúmlega 10.000 sjómílna siglingu.

Eins og fram hefur komið í fréttum er hinn nýi Magni smíðaður í Hi Phong í Víetnam. Skipasmíðastöðin Damen Shipyards í Hollandi smíðar bátinn, en hún rekur skipasmíðastöð í Víetnam ásamt fjölda annarra stöðva víðs vegar um heiminn. Smíði bátsins var boðin út í fyrra og voru tilboð opnuð í nóvember sama ár. Alls bárust 15 tilboð frá átta skipasmíðastöðvum og var tilboði Damen Shipyards, að upphæð jafnvirði 1.040 milljóna, tekið.

Hinn nýi dráttarbátur er 32 metra langur og 12 metra breiður. Hann er með tvær 2.025 kW aðalvélar (samanlagt 6.772 hestöfl). Togkraftur verður 85 tonn fram og 84 aftur. Er það helmingi meiri togkraftur en núverandi Magni hefur og sá sami og samanlagður kraftur allra fjögurra núverandi báta Faxaflóahafna. Ákveðið hefur verið að núverandi Magni fái nafnið Haki.

Við þessi tímamót er fróðlegt að rifja upp sögu dráttarbáta í Reykjavík, en sú saga spannar 91 ár. Myndirnar með greininni eru í eigu Faxaflóahafna, nema annað sé tekið fram.

Í hinu gagnmerka riti Guðjóns Friðrikssonar um 100 ára sögu Reykjavíkurhafnar, Hér heilsast skipin , kemur fram að mönnum varð ljóst á fyrstu árunum eftir að höfnin var fullgerð (1917), að brýn nauðsyn var að kaupa kraftmikinn dráttarbát. Aflað var tilboða í nýsmíði en kostnaðurinn var talinn of mikill.

Fyrsti Magni keyptur í Hamborg

Niðurstaðan varð að kaupa átta ára gamlan bát í Hamborg í Þýskalandi. Báturinn kom til Reykjavíkur árið 1928 og hlaut nafnið Magni. Hann var knúinn 325 hestafla gufuvél. Magni 1 var í notkun fram á sumarið 1955 en var þá gerður að flotbryggju fyrir hafnsögubátana.

Magni II. kom næstur og hann á sér merka sögu enda fyrsta stálskipið sem Íslendingar smíðuðu. Magni liggur nú ásamt varðskipinu Óðni við safnabryggju Sjóminjasafnsins í Gömlu höfninni í Reykjavík.

Dráttarbáturinn Magni var smíðaður í Stálsmiðjunni í Reykjavík og hannaður af Hjálmari R. Bárðarsyni skipaverkfræðingi (1918-2009) fyrir Reykjavíkurhöfn. Hjálmar var mikill frumkvöðull og hafði lengi haft hug á að smíða fyrsta stálskipið. Hjálmar hannaði bátinn svo að hann hentaði í flestöll verkefni auk aðalverkefnisins, sem var að aðstoða skip og draga.

Magna var hleypt af stokkunum í október 1954 og afhentur Reykjavíkurhöfn 25. júní 1955. Aðalvél og hjálparvél voru af gerðinni Deutz og dráttargetan 12 tonn. Lengst af var hann eini dráttarbáturinn sem höfnin hafði yfir að ráða. Eins var Magni notaður mikið í vatnsflutninga til skemmtiferðaskipa á ytri höfninni. Árið 1986 bræddi aðalvél Magna úr sér og var bátnum lagt. Magni var afhentur Sjóminjasafninu til varðveislu fyrir nokkrum árum. Hollvinasamtök Magna hafa pantað nýja vél í bátinn og stefna af því að gera hann haffæran.

Árið 1987 var ákveðið að kaupa tvo notaða dráttarbáta frá Hollandi. Hlutu þeir nöfnin Haki og Magni. Þeir voru 33 rúmlestir og höfðu 10 tonna togkraft.

Haustið 1995 var gengið til samninga við Damen Shipyards í Hollandi um smíði nýs dráttarbáts. Kom hann til landsins vorið 1996 og fékk nafnið Magni. Var hann sá fjórði með því nafni. Nýi Magni var 76 rúmlestir og hafði 17 tonna togkraft. Fljótlega var ljóst að þörf væri á enn öflugri dráttarbáti, enda fóru skipin stækkandi sem komu til hafnar. Ennfremur var búið að stofna fyrirtækið Faxaflóahafnir sf. og athafnasvæðið var nú allur Faxaflóinn. Meðal annars Grundartangahöfn, en þangað komu risastór súrálsskip.

Nýjasti Magni kom 2006

Árið 2005 var því ráðist í að kaupa 141 tonns dráttarbát sem hafði 39,5 tonna togkraft. Var hann keyptur af skipasmíðastöð Damen, smíðaður í Rúmeníu og kom til landsins 2006.

Magni, sá fimmti í röðinni, er enn að störfum. Á heimasíðu Faxaflóahafna segir að þörf fyrir svo öflugan dráttarbát hafi aukist árin á undan með komu mun stærri skipa. Í bátnum eru mjög öflugar brunadælur. Góð aðstaða er fyrir áhöfn.

Og enn stækka skipin og risastór skemmtiferðaskip koma hingað á sumrin. Þá mun Eimskip á næsta ári taka í notkun rúmlega 26 þúsund tonna vöruflutningaskip. Þörfin fyrir enn stærri dráttarbáta eykst því enn.