Ásgeir Ingvarsson
ai@mbl.is
Það á við um sjávarútveginn eins og allar greinar atvinnulífsins að allt of sjaldan gefst tækifæri til að reyna að spá fyrir um framtíðina og virkja heilasellurnar til að finna sniðugar nýjar lausnir. Daglegur rekstur er alveg nógu krefjandi og svo er það líka þannig að hugsunarháttur fólks á það til að festast innan ákveðins ramma og þarf oft einhvern utanaðkomandi til að rýna í áskoranirnar og tækifærin frá alveg nýju sjónarhorni til að kveikja almennilega á perunum. Glöggt er gests augað, segir máltækið.
Ný stétt hefur komið fram á sjónarsviðið til að bregðast við þessari þörf. Framtíðarfræðingar (e. futurists) eru kallaðir að borðinu þegar stofnanir og fyrirtæki vilja leggjast í ítarlega naflaskoðun. Helga Jósepsdóttir er sjálfstætt starfandi framtíðarfræðingur með aðsetur í Madríd á Spáni þar sem hún er jafnframt aðjúnkt við IE Business School, óravegu frá æskuslóðunum á Eskifirði.
Helga ritar áhugaverða hugleiðingu í nýútkomnu riti Sjávarklasans , Bak við yztu sjónarrönd , þar sem hún hvetur greinina til dáða og segir íslenska sjávarútvegsgeirann geta haft afgerandi og jákvæð áhrif á heiminn. Henni þætti gaman ef sjávarútvegsfyrirtæk og hagsmunasamtök þeirra gerðu meira að því að nýta krafta framtíðarfræðinga enda næsta víst að þannig komi verðmæt þekking, innsæi og hugmyndir upp á yfirborðið.
Leita innblásturs víða
Framtíðarfræðingar nálgast verkefni sín með ólíkum hætti en Helga segir ekki óalgengt að fyrst af öllu þurfi að ráðast í ítarlega rannsóknarvinnu. „Í mínu tilviki fara oftar en ekki um þrjár vikur í að skoða viðkomandi grein mjög vandlega, hvaða hugmyndir eru þegar á sveimi og verkefni í pípunum. Hér kemur sér vel að þekkja þróunina sem víðast í atvinnulífinu innanlands og erlendis og mögulega koma auga á leiðir til að yfirfæra þekkingu og lausnir frá einu sviði yfir á annað. Útgangspunktur í minni ráðgjöf er ætíð að virðing og nýting séu höfð að leiðarljósi: að fyrirtæki og stofnanir umgangist starfsfólk sitt, viðskiptavini og umhverfi af virðingu og leitað sé lausna til að láta sem minnst fara til spillis, bæði af tíma, orku, erfiði og hráefnum.“Afrakstur þessa fyrsta skrefs í starfi framtíðarfræðingsins er yfirleitt í formi ítarlegrar skýrslu og kynningar, þar sem bæði er gefið gott yfirlit yfir sviðið, helstu straumar í nýsköpun eru skilgreindir og kastljósinu beint að áhugaverðustu tækifærunum til umbreytingar fyrir fyrirtækið eða stofnunina sem í hlut á. „Oftast er framtíðarfræðingurinn í mestu sambandi við framkvæmdastjóra eða aðra háttsetta stjórnendur innan fyrirtækja, s.s. markaðsstjóra, yfirmenn nýsköpunardeilda o.þ.h. og eftir grunnrannsóknina vinnur hann samhliða þeim að því að leggja drög að nýrri vöru eða þjónustu og finna leiðir til að koma enn betur til móts við viðskiptavinina og þeirra þarfir,“ segir Helga en viðfangsefni framtíðarfræðinga spanna allt frá stuttum og afmörkuðum verkefnum yfir í að þeir séu reglulegir gestir hjá fyrirtækjum um árabil og liðsauki þeirra í stefnumótun og hugmyndavinnu.