Ánægja Sverrir Ingi Ingason skoraði, hélt hreinu og er við toppinn.
Ánægja Sverrir Ingi Ingason skoraði, hélt hreinu og er við toppinn. — AFP
Sverrir Ingi Ingason og samherjar hans í PAOK höfðu betur gegn Panionios á útvelli í grísku úrvalsdeildinni í fótbolta í gær, 2:0. Sverrir skoraði fyrra mark PAOK í upphafi seinni hálfleiks.
Sverrir Ingi Ingason og samherjar hans í PAOK höfðu betur gegn Panionios á útvelli í grísku úrvalsdeildinni í fótbolta í gær, 2:0. Sverrir skoraði fyrra mark PAOK í upphafi seinni hálfleiks. Sverrir hefur spilað afar vel upp á síðkastið, en liðið hefur aðeins fengið á sig eitt mark í síðustu sex leikjum og Sverrir skorað tvö í síðustu fjórum. PAOK er í 2. sæti deildarinnar með 37 stig, eins og Olympiacos, sem er með betri markatölu. Sverrir og félagar leika við Atromitos á Þorláksmessu, áður en liðið fer í jólafrí.