Vörn Nikolas Tomsick, sem skoraði 31 stig fyrir Stjörnuna, verst Róberti Sigurðarsyni úr Fjölni.
Vörn Nikolas Tomsick, sem skoraði 31 stig fyrir Stjörnuna, verst Róberti Sigurðarsyni úr Fjölni. — Morgunblaðið/Árni Sæberg
Körfubolti Skúli B.

Körfubolti

Skúli B. Sigurðsson

Jóhann Ingi Hafþórsson

Njarðvíkingar rúlla í jólafríið með bros á vör eftir að hafa unnið Þór frá Þorlákshöfn í Dominos-deild karla í körfubolta í gærkvöldi með 101 stigi gegn 77, en leikið var í Njarðtaksgryfju þeirra Njarðvíkinga. Njarðvíkingar leiddu með átta stigum í hálfleik og náðu mest 26 stiga forskoti í leiknum.

Fyrirfram var búist við nokkuð jöfnum leik þar sem Njarðvíkingar hafa verið á bullandi siglingu og fyrir þennan leik unnið fimm leiki í röð og Þórsarar voru að koma frá þungavigtarsigri á toppliði Keflvíkinga í síðustu umferð. Framan af virtist stefna í hörkuleik en í seinni hálfleik tóku Njarðvíkingar frumkvæðið algjörlega í sínar hendur. Þórsarar jusu eins og þeir gátu vatni úr bátnum en að lokum gáfust þeir upp og stungu sér til sunds þegar Njarðvíkingar sökktu þeim endanlega.

Eftir nokkuð brösuga byrjun í deildinni í ár hafa Njarðvíkingar nú unnið sex leiki í röð í deildinni og sigurinn í gær gríðarlega mikilvægur. Mikilvægur fyrir þær sakir að hver sigur leikur í deildinni virðist vega ansi þungt og hver umferð getur kastað liðum upp eða niður um fjögur til sex sæti. Deildin í ár er að spilast þannig að allir virðast geta unnið alla og því til sönnunar er einmitt fyrrnefndur sigur Þórsara á Keflavík. Njarðvíkingar halda í jólafríið í fjórða sæti deildarinnar en Þórsarar verma áttunda sætið.

Eftir stendur að tvö mót eru eftir: Seinni hluti deildarinnar og svo auðvitað úrslitakeppnin. Bæði þessi lið hafa burði og getu til að fara í úrslitakeppnina að öllu jöfnu, en sem fyrr segir, eins og deildin er að spilast, gæti einbeitingarleysi hæglega slökkt vonir beggja liða um þann draum. „Flott frammistaða hjá mínum mönnum og þetta var bara virkilega góð jólagjöf til okkar stuðningsmanna sem áttu það inni hjá okkur,“ sagði Einar Árni Jóhannsson, þjálfari Njarðvíkinga, eftir leik.

Stjarnan aftur á toppinn

Stjarnan er enn í toppsætinu eftir erfiðan 95:88-sigur á Fjölni á heimavelli. Fjölnir náði mest 19 stiga forskoti í fyrri hálfleik en Stjörnumenn voru betri í síðari hálfleik. Stjarnan hefur lent í vandræðum gegn liðum sem eru neðarlega í töflunni og rétt marið sigra gegn Fjölni, Val og Þór Akureyri, þremur neðstu liðunum. Það er eins og ákveðið kæruleysi grípi um sig hjá Stjörnunni gegn lakari andstæðingum, en hingað til hafa Stjörnumenn sloppið með skrekkinn. Einhvern daginn verður Stjörnunni refsað nái þeir ekki að gíra sig betur í þá leiki sem flestir búast við að liðið vinni örugglega.

Nikolas Tomsick er búinn að vera einn besti leikmaður Íslandsmótsins til þessa og hefur hann hjálpað Stjörnunni að grafa sig úr nokkrum holum í vetur. Tomsick skoraði 31 stig í gær. Hlynur Bæringsson er allur að koma til eftir meiðsli framan af leiktíð og skoraði gamli landsliðsfyrirliðinn 18 stig og tók 21 frákast.

Stjörnumenn fara kampakátir í jólafrí á toppnum og með sjö sigra í röð. Fjölnismenn verða hins vegar að fara rólega í jólasteikina og koma öflugri til baka eftir frí.

Líður vel í Skagafirði

Tindastóll sýndi sitt rétta andlit er liðið vann 106:88-heimasigur á Grindavík. Tindastóll er með 16 stig, rétt eins og Keflavík, tveimur stigum frá toppliði Stjörnunnar. Tindastóll tapaði á útivelli fyrir ÍR í síðasta leik, en Skagfirðingum líður vel á heimavelli þar sem liðið hefur unnið fimm sinnum og aðeins tapað einu sinni.

Gerel Simmons, sem átti mjög slakan leik gegn ÍR í síðustu umferð, er greinilega orðinn heimakær á Króknum en hann skoraði 31 stig og hitti mjög vel. Jaka Brodnik, Pétur Rúnar Birgisson og Sinisa Bilic léku allir vel og var allt annað að sjá til Tindastóls.

Fyrir leikinn hafði Grindavík unnið þrjá leiki í röð, gegn Val, ÍR og Þór Akureyri, en það er ljóst að Grindavík á nokkuð í land þegar liðið mætir bestu liðum landsins. Sigtryggur Arnar Björnsson og Ingvi Þór Guðmundsson áttu góða leiki, en Grindavík verður að fá meira framlag frá fleiri leikmönnum. Björgvin Hafþór Ríkharðsson og Ólafur Ólafsson verða t.a.m. að sýna meiri stöðugleika ef liðið ætlar sér stærri hluti en á síðustu tímabilum, þar sem það hefur fallið úr leik í átta liða úrslitum Íslandsmótsins.

Keflavík aftur á sigurbraut

Í Keflavík sýnu heimamenn styrk sinn og unnu sannfærandi 93:70-sigur á ÍR. Keflavík tapaði nokkuð óvænt fyrir Þór Þorlákshöfn í síðustu umferð en ÍR vann sterkan sigur á Tindastóli og bjuggust margir við jöfnum leik. Keflvíkingar mættu hins vegar miklu sterkari til leiks og var staðan snemma orðin 19:2. Tókst ÍR-ingum aldrei að jafna eftir það. Dominykas Milka sýndi allar sínar bestu hliðar og skoraði 16 stig, tók 14 fráköst og gaf 14 stoðsendingar. Milka er góður í svo gott sem öllu á körfuboltavellinum og þegar hann spilar vel spilar Keflavík oftast vel. Ágúst Orrason skoraði svo 23 stig af bekknum á aðeins rúmum ellefu mínútum og svaraði kalli margra sem höfðu gagnrýnt Keflavík fyrir að of fáir legðu í púkkið í stigaskorun. Keflvíkingar vonast til að þeir séu komnir á rétta braut á ný eftir þrjú töp á skömmum tíma.

ÍR-ingar eru ólíkindatól. Þeir hafa unnið góð lið á borð við Tindastól og KR en í gær fór allt í baklás og liðið leit alls ekki vel út. ÍR er í sjöunda sæti og þarf mun meiri stöðugleika til að lyfta sér upp töfluna eftir jól og ná þeim hæðum sem liðið gerði á síðustu leiktíð.