Togarinn Lómur II slitnaði frá bryggju í veðurofsa og strandaði í smábátahöfnini í Kópavogi 2008.
Togarinn Lómur II slitnaði frá bryggju í veðurofsa og strandaði í smábátahöfnini í Kópavogi 2008. — Morgunblaðið/Golli
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Ef stefnt er að því að forðast tjón vegna veðurs er líklega best að gera ávallt ráð fyrir því versta.

Ótvírætt er að á eyju í norðanverðu Atlantshafi sé líklegt að verði vont veður og eru landsmenn margir hverjir vanir ýmsum uppákomum enda hefur oft blásið rækilega hér á landi, jafnvel á síðustu árum.

Þá er heldur algengt að ýmsir bátar laskist í slæmu veðri þrátt fyrir að lagt hafi verið kapp á að tryggja landfestar og ganga frá öllum búnaði.

Mesta hættan er þó kannski ekki af veðrinu sjálfu heldur því að fólk verði værukært og búist við að næsta óveður verði svipað og síðast þegar allt gekk vel, tali veðrið jafnvel niður. Er þá hætta á því að ekki verði gerðar viðhlítandi ráðstafanir til þess að mæta veðurguðunum, en eins og kom bersýnilega í ljós í síðustu viku getur veðurofsinn jafnvel komið gömlum jálkum á óvart.

Þykir líklegt að óveður færist aftur yfir landið á einhverjum tímapunkti og sem betur fer eru veðurathuganir nægilega nákvæmar til þess að hægt sé að búa sig undir slíkt með þokkalegum fyrirvara.