Veikindi Virgil van Dijk gæti misst af úrslitaleiknum á morgun.
Veikindi Virgil van Dijk gæti misst af úrslitaleiknum á morgun. — AFP
Óvissa ríkir um hvort Virgil van Dijk geti leikið með Liverpool gegn Flamengo frá Brasilíu í úrslitaleik heimsbikars félagsliða í Doha á morgun. Hann missti af undanúrslitaleiknum gegn Monterrey frá Mexíkó í fyrrakvöld, sem Liverpool vann naumlega, 2:1.
Óvissa ríkir um hvort Virgil van Dijk geti leikið með Liverpool gegn Flamengo frá Brasilíu í úrslitaleik heimsbikars félagsliða í Doha á morgun. Hann missti af undanúrslitaleiknum gegn Monterrey frá Mexíkó í fyrrakvöld, sem Liverpool vann naumlega, 2:1. Varnarmaðurinn öflugi er veikur, gat ekki æft með liðinu fyrir leikinn. Fyrirliðinn Jordan Henderson fór í hans stöðu í vörninni í leiknum gegn Monterrey en miðverðirnir Dejan Lovren og Joel Matip eru báðir frá keppni vegna meiðsla.