Átta Oddur Gretarsson var markahæstur hjá Balingen með átta mörk.
Átta Oddur Gretarsson var markahæstur hjá Balingen með átta mörk. — Heimasíða Balingen
Oddur Gretarsson var markahæstur í liði Balingen sem mátti þola 26:36-tap fyrir toppliði Kiel í þýsku 1. deildinni í handbolta í gærkvöldi. Oddur skoraði átta mörk, en það dugði skammt. Gísli Þorgeir Kristjánsson lék ekki með Kiel vegna meiðsla.
Oddur Gretarsson var markahæstur í liði Balingen sem mátti þola 26:36-tap fyrir toppliði Kiel í þýsku 1. deildinni í handbolta í gærkvöldi. Oddur skoraði átta mörk, en það dugði skammt. Gísli Þorgeir Kristjánsson lék ekki með Kiel vegna meiðsla. Kiel náði tveggja stiga forskoti á toppi deildarinnar, þar sem Flensburg tapaði óvænt fyrir Ludwigshaven, 23:25. Þá var Alexander Petersson ekki með RN Löwen sem vann 32:28-sigur á lærisveinum Geirs Sveinssonar í Nordhorn. Kristján Andrésson þjálfar Löwen.