Jólatré Járnjólatré Alexanders er einstakt og veldur ekki ofnæmi.
Jólatré Járnjólatré Alexanders er einstakt og veldur ekki ofnæmi. — Morgunblaðið/Árni Sæberg
Rósa Margrét Tryggvadóttir rosa@mbl.is Alexander Bridde, sem rekur járnsmíðaverkstæðið Prófílstál, smíðaði á dögunum einstakt 180 sentímetra hátt jólatré úr járni fyrir eiginkonu sína, Ingibjörgu, sem þjáist af hvimleiðu ofnæmi fyrir greni.

Rósa Margrét Tryggvadóttir

rosa@mbl.is

Alexander Bridde, sem rekur járnsmíðaverkstæðið Prófílstál, smíðaði á dögunum einstakt 180 sentímetra hátt jólatré úr járni fyrir eiginkonu sína, Ingibjörgu, sem þjáist af hvimleiðu ofnæmi fyrir greni.

Alexander segir Ingibjörgu hafa verið fljóta að samþykkja nýja tréð þrátt fyrir að þetta væri í fyrsta skipti í 37 ár sem fjölskyldan væri ekki með lifandi jólatré.

Jólatréð prýðir nú heimili þeirra hjóna, hangandi úr loftinu, barnabörnunum til mikillar gleði.

Sonur Alexanders, Guðni Bridde, sem einnig er járnsmiður á verkstæði föður síns, smíðaði stjörnuna sem trónir á toppi járntrésins.

Alexander er enginn nýgræðingur í hönnun og smíði skrautmuna en hann segist smíða flestar gjafir sem hann gefur sjálfur úr járni.

„Ég er náttúrlega járnsmiður og smíða gríðarlega mikið af alla vega hlutum og gjöfum. Ég er frjór í þessu, eins og maður segir, og hef smíðað minni tré með seríum í hundraðavís,“ segir Alexander í samtali við Morgunblaðið.

Hann fullyrðir þó að nýtt járnjólatré fjölskyldunnar sé stærsta jólatré sem hann hafi smíðað. 12