Lögsótt Jennifer Lopez í Hustlers.
Lögsótt Jennifer Lopez í Hustlers.
Samantha Barbash, fyrrverandi fatafella, hefur höfðað skaðabótamál gegn framleiðendum kvikmyndarinnar Hustlers og krefst hún 40 milljóna bandaríkjadala í skaðabætur.

Samantha Barbash, fyrrverandi fatafella, hefur höfðað skaðabótamál gegn framleiðendum kvikmyndarinnar Hustlers og krefst hún 40 milljóna bandaríkjadala í skaðabætur. Barbash er fyrirmyndin að einni persónu kvikmyndarinnar, Ramónu, sem Jennifer Lopez leikur. Barbash heldur því fram að líkindin með sér og sögu sinni og Ramónu séu slík að hún eigi rétt á bótum.

Fyrirtækin sem Barbash hefur farið í mál við eru STX og Nuyorican Productions sem Lopez er eigandi að. Handrit myndarinnar byggist á grein í New York- tímaritinu sem sagði af hópi fatafella sem rændu hóp viðskiptavina með klækjabrögðum.