40 ára Camilla er frá Nuuk á Grænlandi en fluttist til Íslands árið 2002 og býr í Reykjavík. Hún er hjúkrunarfræðingur að mennt frá Næstved í Danmörku og er hjúkrunarfræðingur á Meltingarsetrinu í Mjódd og á Landspítalanum. Maki : Halldór Steinsson, f.
40 ára Camilla er frá Nuuk á Grænlandi en fluttist til Íslands árið 2002 og býr í Reykjavík. Hún er hjúkrunarfræðingur að mennt frá Næstved í Danmörku og er hjúkrunarfræðingur á Meltingarsetrinu í Mjódd og á Landspítalanum.

Maki : Halldór Steinsson, f. 1973, íþróttakennari að mennt frá Laugarvatni og er íþróttafulltrúi í Fylki.

Börn : Erik Steinn, f. 2002, Rebecca, f. 2005, og Róbert, f. 2011.

Foreldrar : Hans Mortensen, f. 1945, vélstjóri, og Arnannguak Mortensen, f. 1942, húsmóðir. Þau eru búsett í Nakskov á eynni Lálandi í Danmörku.