Ágústa Hansdóttir fæddist 14. nóvember 1958 í Reykjavík. Hún lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja 1. janúar 2020.

Foreldar hennar voru Hans Ragnar Sigurjónsson, f. 16. júní 1927, d. 30. desember 2013, og Ingibjörg Guðbjörnsdóttir, f. 3. september 1929, d. 11. júlí 2008. Systkini hennar voru Sigurjón, f. 28. febrúar 1950, d. 6. júní 1964, Anna Scheving, f. 6. ágúst 1952, Ása Björk, f. 6. febrúar 1957, Unnur Björg, f. 27. apríl 1961, og Sigurjón, f. 11. maí 1965.

Ágústa giftist 7. október 1978 Halldóri Péturssyni, f. 8. janúar 1958. Faðir hans var Pétur Ingvason, f. 4. ágúst 1933, d. 27. maí 2012, og móðir er Elín Kristín Halldórsdóttir, f. 11. desember 1938. Systkini Halldórs eru: Ingvi, f. 4. desember 1959, Þóra, f. 7. apríl 1962, d. 28. júní 1965, Lilja, f. 13. mars 1963, Pétur, f. 4. ágúst 1969 og Þóra, f. 21. ágúst 1973.

Börn Ágústu og Halldórs eru Pétur, f. 7. júlí 1979, og Arnar Már, f. 7. ágúst 1984. sambýliskona Arnars er Birna Ármey Þorsteinsdóttir, f. 3. maí 1984, börn hennar eru Hafdís Birta, f. 13. september 2004, Ármann Guðni, f. 22. febrúar 2006, og Lilja María, f. 7. apríl 2010.

Ágústa starfaði lengst af sem bókari í fjölskyldufyrirtæki þeirra hjóna, H. Péturssyni ehf. Ágústa var mikil félagsvera og spilaði golf og laxveiði. Henni þótti gaman að ferðast og ferðaðist hún mikið bæði hérlendis og erlendis. Útförin fer fram í dag, 10. janúar 2020, frá Útskálakirkju Garði og hefst athöfnin klukkan 15. Einnig verður athöfninni útvarpað í Gerðaskóla.

Ágústa var alltaf kölluð Gústa af þeim fjölmörgu sem hana þekktu. Hún var ósérhlífin dugnaðarforkur, vinamörg og barngóð sem sást best á því hve hún laðaði að sér systkinabörn sín og Dóra. Flest vildu þau koma og gista hjá Gústu frænku og Dóra, ærslast í pottinum úti á palli eða heimsækja hana í vinnuna í Fiskverkun HP sem hún rak með Dóra sínum. Hún hafði alltaf tíma fyrir börnin. Gústa var dýravinur og átti um tíma Sókrates, boxer-hund sem fylgdi henni öllum stundum. Hún var mjög næm fyrir Sókrates og fannst okkur stundum hún geta lesið hugsanir hans og túlkað.

Það var gott að koma til Gústu og ávallt gistum við Ása hjá henni og Dóra með börnin okkar í lengri og skemmri tíma þegar við eyjafólkið þurftum að dvelja á fastalandinu. Það var aldrei neitt annað í stöðunni en að gista hjá Gústu, Dóra, Pétri og Adda þegar við vorum fyrir sunnan. Ása og Gústa voru alla tíð mjög nánar og urðu enn nánari eftir að við fluttum suður í des. 2005, en þær töluðu nánast við hvor aðra daglega. Þá eru börnin okkar mjög náin frænku sinni og syrgja hana mjög.

Gústa var mikill golfari og ótrúlega dugleg að stunda golfið þrátt fyrir að hún hafi verið með aðeins eitt lunga en í nóvember 2012 greindist hún með illkynja æxli í lunga. Hún gekkst undir stóra aðgerð þar sem lungað var fjarlægt en hún sýndi ótrúlega hógværð og mikinn styrk á þeim tíma og var fljót að jafna sig, slíkur var krafturinn í henni. Hún naut sín best á Kirkjubólsvelli Golfklúbbs Sandgerðis þar sem þau Dóri eru félagsmenn. Hversu oft höfum við ekki fengið snöpp eða facebookfærslu frá henni í sumarkvöldsól og fallegu veðri á teignum á 8. braut á Kirkjubólsvelli af útsýni til sjávar í átt til Snæfellsjökuls sem engu er líkt. Nánast á hverjum degi mátti sjá þau hjónin á golfvellinum í Sandgerði ýmist eftir vinnu eða um helgar ef þau voru þá ekki á ferðalagi með hjólhýsið sitt.

Hún Gústa skynjaði fegurðina í náttúrunni og var dugleg að deila upplifun sinni á ferðalögum á samfélagsmiðlum. Gústa og Dóri voru alla tíð mjög samrýnd enda búin að vera saman síðan þau voru 16 ára og þau ferðuðust mikið síðustu ár. Golfið gaf henni Gústu minni mikið, hún var mikil keppnismanneskja svo ótrúlega dugleg en var jafnframt alltaf jákvæð og glöð á golfvellinum. Við áttum með Gústu og Dóra dýrmætar stundir í Orlando nú síðast í febrúar 2019 í rúmar 2 vikur, og þá var spilað mikið golf, tekið í spil á kvöldin og skemmt sér. Gústa talaði aldrei niður til nokkurs manns, var skemmtileg og glaðvær og var ávallt fjör í kringum hana og Dóra.

Gústa þessi litla ofurkona ótrúlega hörð af sér tókst á við mjög erfið veikindi af ótrúlegri hógværð, stillingu og rósemd svo að við lá að okkur fyndust veikindi hennar ekki eins alvarleg og raun var. Hún lést að kveldi nýársdags umvafin ástvinum sínum á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja. Hún var elskuð og yfir okkur öll hellist mikil sorg. Elsku Dóri og fjölskylda, við vottum ykkur dýpstu samúð á erfiðum tímum og megi góður guð styrkja ykkur í sorginni.

John og Ása.

Okkur langar að minnast elsku frænku okkar Ágústu Hansdóttur eða Gústu frænku eins og við kölluðum hana.

Orð mega sín lítils á þessari stundu og segja þessar ljóðlínur meira en mörg orð.

Við höfði lútum í sorg og harmi

og hrygg við strjúkum burt tárin af hvarmi.

Nú stórt er skarð í líf okkar sorfið

því fegursta blómið er frá okkur horfið.

Með ástúð og kærleik þú allt að þér vafðir

og ætíð tíma fyrir okkur þú hafðir

þótt móðuna miklu þú farin sért yfir

þá alltaf í huga okkar myndin þín lifir.

Við kveðjum þig, frænka, með söknuð í hjarta,

en minning um faðmlag og brosið þitt bjarta.

Allar liðnar stundir um þig okkur dreymi

og algóður Guð á himnum þig geymi.

(Sigfríður Sigurjónsdóttir)

Í huga okkar og hjarta mun ávallt lifa minning um Gústu frænku, takk fyrir allt, elsku hjartans Gústa okkar.

Samúðarkveðjur sendum við til Dóra, Péturs, Adda, Birnu, Hafdísar, Ármanns, Lilju, systkina Gústu og fjölskyldna og tengdafjölskyldu á þessari sorgarstund.

Þínar frænkur,

Hlíf Berry og Sigríður

Inga Aðalsteinsdóttir

(Hlíf og Sigga).

Það var að kvöldi nýársdags að okkur bárust þær sorgarfréttir að elskulega Gústa okkar, æskuvinkona og skólasystir, væri látin. Stórt skarð er höggvið í okkar vinkonuhóp og verður hennar sárt saknað.

Elsku Gústa sem alltaf var hrókur alls fagnaðar, hvort sem var í saumaklúbbnum eða í golfinu.

Með söknuði kveðjum við kæra æskuvinkonu.

Elsku Dóri, Pétur og Addi, megi Guð styrkja ykkur á þessum sorgartímum.

Lillý, Rósa, Lilja, Guðný og Matthildur (Mæja).

Lífið er hverfult og alls ekki hægt að segja að það sé sanngjarnt. Ágústa Hansdóttir gekk fyrir ætternisstapann á fyrsta degi ársins eftir langvinna baráttu við illvígan sjúkdóm, langt um aldur fram, aðeins 61 árs að aldri.

Gústu, eins og hún var jafnan nefnd, kynntist ég fyrir um 45 árum þegar hún krækti í æskuvin minn Halldór Pétursson, eða reyndar þau hvort í annað. Þau voru í raun unglingar, aðeins 16 ára bæði. Gústa nam þá hússtjórnarfræði á Laugarvatni. Ekki er laust við að ég hafi verið afbrýðisamur út í Gústu í upphafi þar sem tími vinar míns varð nú mun minni mér til handa. En það breyttist fljótt er ég uppgötvaði hvílík mannkostastúlka hún var. Þau giftu sig árið 1978.

Athafnasemi var þeim hjónum í blóð borin. Eftir að þau höfðu komið sér vel fyrir í eigin íbúð og eignast frumburðinn, Pétur, ventu þau sínu kvæði í kross og keyptu eitt stærsta kúabú landsins, Ármót í Rangárvallasýslu, ásamt vinahjónum sínum. Þar fæddist þeim seinni sonurinn, Arnar Már. Eftir nokkur ár í sveitinni flutti fjölskyldan í Garðinn á Reykjanesi þar sem Halldór hóf störf við verkstjórn í fiskvinnslu en Gústa við skrifstofustörf. Að nokkrum árum liðnum, er þeim óx fiskur um hrygg, hófu þau eigin rekstur og ráku um árabil öfluga fiskvinnslu í Garðinum og einnig útgerð, í minni mæli þó. Gústa og Halldór voru afar góðir vinnuveitendur og til marks um það var sama starfsfólkið hjá þeim árum og áratugum saman. Þau hjónin voru máttarstólpar í sínu sveitarfélagi. Gústa og Halldór byggðu sér fallegt heimili að Klapparbraut 9 í Garðinum þar sem allir voru alltaf velkomnir. Bæði komu þau úr stórum fjölskyldum og var því oft glatt á hjalla þegar ættingjar og vinir komu í heimsókn.

Gústa greindist með alvarlegan sjúkdóm árið 2012 og við tók erfiður tími hjá fjölskyldunni. Svo fór að Gústa náði sér furðanlega vel og vonir voru bundnar við að meinið væri að baki. Seinni árin stunduðu þau ferðalög og golf af miklum móð. Voru þau tíðum erlendis að skoða heiminn og spila gólf, oftar en ekki með ættingjum og vinafólki sínu.

Upplifun minni af Gústu í gegnum áratugina kýs ég að lýsa á eftirfarandi hátt; Raunsæ, góðlynd og endalaus gæði. Hlýjan streymdi frá henni. Hún hugsaði vel um fólkið í kringum sig og sýndi ótrúlegt æðruleysi gagnvart máttarvöldunum. Alltaf var einstaklega ljúft að heimsækja og vera samvistum við þau heiðurshjónum, rifja upp liðna tíð, nútímann og hvað væri framundan. Samheldni þeirra, dugnaður og eljusemi var aðdáunarverð og þá ekki síst þegar á móti blés í tilverunni. Ég er ákaflega þakklátur fyrir að hafa kynnst Gústu og átt samleið með henni og Halldóri, meira og minna í 45 ár.

Það er skarð fyrir skildi að sjá á eftir Ágústu Hansdóttur yfir móðuna miklu. Eftirlifandi eiginmanni, Halldóri Péturssyni, sem stóð eins og klettur við hlið eiginkonu sinnar alla tíð, og sonunum Pétri og Arnari votta ég mína dýpstu hluttekningu vegna missis þeirra sem og stórfjölskyldu og vinum Gústu. Nú er dapurlegur tími en öll él birtir um síðir. Eigi má sköpum renna.

Kristinn Dagur Gissurarson.

Elsku Gústa mín.

Erfitt er að byrja fátæklega umfjöllun um þig því að raunveruleikinn er nokkuð fjarlægður, að þú sért flogin í burtu frá okkur á annað tilverustig...tekin frá okkur, flýgur með djúpri veðurlægð sem herjar þessa dagana, hafið, hólma og sker.

Margs að minnast...

Þú og Dóri hafið verið svo stór þáttur í lífshlaupi okkar fjölskyldunnar, ávallt mikið fjör, söngur, tjald- og utanlandsferðir og góðar samverustundir frá því að við hittumst fyrst í Bjarmalandinu fyrir nokkuð mörgum árum, en samt svo stutt síðan. Svei mér þá, ég var ekki kominn með skeggrót. Þið í hrútakofanum (eins og Hans tengdapabbi kallaði herbergið í forstofunni) mikið spjallað um alla heima og geima, grín og glens, og áfram sungið: „Season sin the Sun.“ Snillingurinn þú með kassagítar, og söngst af tilfinningu: „Goodbye Papa please prey for me.“ Eða skátasöngva og auðvitað breyta textanum, Dóri orðinn aðalpersónan í textanum, enda skátaforingi. Söngurinn ómaði um, stræti, móa og torg.

Árin liðu, boltinn byrjar að rúlla, þið Dóri stofnið heimili og drengirnir ykkar og okkar Unnar fæðast, flutningar með barnavagnana upp og niður á milli hæða. Þú og Unnur töluðuð saman allan daginn og langt fram á kvöld...Ó elsku besti síminn, ó síminn...allt í gangi.

Þú hafðir æðislegan húmor. Ef maður labbaði á staur, eða datt í stiga, eða lamdi á vísifingur þá hlóst þú stemningshlátri, áður en þú læknaðir sárið auðvitað – allir glaðir.

Ég veit að þér finnst þetta orðið ágætt hjá mér, bla, bla, bla. Um þig væri hægt að skrifa góða bók, margt hefur á daga þína og þinna drifið. Þú nennir ekkert að ræða það, þú mundir ekki lesa bókina.

Að lokum þetta, Gústa mín, takk fyrir allt, vináttu, tryggð og kærleik. Þín verður sárt saknað.

Megi góði guð halda þétt utan um Dóra, Pétur, Arnar Má, systkini þín og fjölskyldur.

„Goodbye to you my trusted friend. Æi, hættu nú, Piddi.“

Pjetur Árnason.

Ég veit ekki hvernig mér líður, mér fannst þú fara alltof fljótt úr lífi mínu. Ef ég gæti fengið að hitta þig einu sinni enn myndi ég vilja fá knús frá þér, en ég myndi ekki vita hvað ég ætti að segja þér.

Við gerðum margt skemmtilegt, útilegan þar sem ég fékk að róa bátunum og bjóða öllum í siglingu var skemmtileg, ferðirnar í heita pottinn og klakastríðin og þegar ég fékk að sjá safnið ykkar á skrifstofunni þar sem krókódílahausinn var, vopnin og Afríkudótið. Náttfatajólin okkar í fyrra og sparijólin núna voru skemmtileg og áramótin mín í fyrra voru þau bestu.

Þú varst góð kona, ljúf og fyndin og sérstaklega grettuandlitið þitt með vörunum. Þú varst alltaf góð við mig og ég sakna þín. Ég hugsa mikið um þig, sérstaklega þegar ég fer að sofa og er alltaf með „Lífið er núna“-armbandið mitt á mér.

Mér finnst leiðinlegt að þú komist ekki í afmælið mitt og ekki heldur í ferminguna mína, en ég held að þú eigir eftir að fylgjast með mér, hvar sem þú ert.

Mér þykir vænt um þig.

Þinn

Ármann Guðni.

Hún Gústa mín var alltaf elskuleg, alltaf svo blíð og góð við alla í kringum sig. Ég á margar góðar minningar um hana Gústu sem mér þykir vænt um, ég er mjög þakklát fyrir allt sem hún gerði með okkur og fyrir okkur og hefði viljað fá meiri tíma með henni.

Ég ætla alltaf að halda áfram að standa mig vel, hún var alltaf dugleg að segja mér hversu vel ég stæði mig og hversu stolt hún væri af mér.

Þú verður alltaf í hjarta mínu og ég sakna þín mjög mikið, allt er svo tómlegt hér núna, ég á erfitt með að trúa að þú sért farin frá okkur. Ég vona að þér líði vel þar sem þú ert. Ég hugsa mikið til þín; þegar ég vakna, í skólanum og þegar ég fer að sofa. Er þakklát fyrir jólin okkar saman og skemmtilegu myndina sem ég á af okkur sem ég tók á nýju polaroid-myndavélina mína sem ég fékk í jólagjöf.

Kær kveðja, þín

Hafdís Birta.

Elsku Gústa.

Mig langaði að finna fallegt ljóð handa þér um blóm. Ég fann eitt fallegt með mömmu um blátt blóm, þó að uppáhaldsliturinn þinn hafi verið mosagrænn.

Blátt lítið blóm eitt er,

ber nafnið: Gleymdu ei mér.

Væri ég fleygur fugl

flygi ég til þín.

Svo mína sálu nú

sigraða hefur þú,

engu ég unna má

öðru en þér.

(Þýsk þjóðvísa)

Sakna þín mjög mikið.

Þín

Lilja María.

Elsku Gústa vinkona okkar er fallin frá, aðeins 62 ára að aldri. Illvígur sjúkdómur sigraði þessa lífsglöðu og jákvæðu konu.

Við kynntumst fyrir mörgum árum þegar við vorum saman í nefnd foreldrafélags Gefnarborgar, strákarnir okkar, Addi sonur Gústu og Baddi sonur minn, voru saman á leikskóla, fæddir 1984. Dóri og Bergþór hittust á hverjum degi á fiskmarkaðnum og við viðhengin fórum stundum saman að gera okkur glaðan dag. Það var svo í maí 2010 að við fórum fjögur saman í golfkennslu til Karenar og eftir það fórum við að reyna okkar besta á Sandgerðisvellinum það sumar.

Haustið 2010 hringdi svo Gústa í mig og sagðist hafa verið að panta í golfferð og hefði óvart pantað fyrir fjóra og bað okkur að koma með þeim. Við slógum til og var sú ferð alveg frábær í alla staði þó svo að við kynnum varla golf.

Þetta var fyrsta ferðin okkar af fjöldamörgum sem við höfum farið í, auk allra hinna ferðanna bæði innanlands og erlendis.

Gústa var mikill gleðigjafi í öllum þessum ferðum og við eigum eftir að sakna hennar mjög mikið. Gústa og Dóri voru mjög samrýnd hjón og gerðu nánast allt saman.

Við viljum þakka elsku Gústu okkar fyrir allar skemmtilegu samverustundirnar í gegnum tíðina og sendum Dóra, Pétri og Adda og fjölskyldu okkar innilegustu samúðarkveðjur.

Bryndís og Bergþór.