Slys 176 farþegar létust í slysinu.
Slys 176 farþegar létust í slysinu. — AFP
Flest bendir til þess að Íranar hafi sjálfir skotið niður flugvél úkraínska flugfélagsins Ukraine International Airlines, sem hrapaði í Teheran aðfaranótt miðvikudags.
Flest bendir til þess að Íranar hafi sjálfir skotið niður flugvél úkraínska flugfélagsins Ukraine International Airlines, sem hrapaði í Teheran aðfaranótt miðvikudags. Myndband sem New York Times birti í gær á heimasíðu sinni af flugslysinu virðist staðfesta þetta. Justin Trudeau, forsætisráðherra Kanada, segir gögn renna stoðum undir að flugskeyti hafi grandað vélinni. Segist hann ætla að tryggja „ítarlega rannsókn“ á orsökum slyssins en kanadísk stjórnvöld kröfðust þess í gær að Íranar myndu leyfa kanadískum sérfræðingum að taka þátt í rannsókn flugslyssins sem olli dauða 63 Kanadamanna. 13 og 14