Jóhann Berg Guðmundsson, landsliðsmaður í knattspyrnu og leikmaður enska úrvalsdeildarliðsins Burnley, er ekki illa meiddur. Fór hann meiddur af velli í 4:2-sigri Burnley gegn Peterborough í ensku bikarkeppninni um síðustu helgi.
Jóhann Berg Guðmundsson, landsliðsmaður í knattspyrnu og leikmaður enska úrvalsdeildarliðsins Burnley, er ekki illa meiddur. Fór hann meiddur af velli í 4:2-sigri Burnley gegn Peterborough í ensku bikarkeppninni um síðustu helgi. Sean Dyche, knattspyrnustjóri Burnley, sagði á blaðamannafundi í gær að um væri að ræða smávægilega tognun aftan í læri hjá Íslendingnum. Jóhann mun þó ekki taka þátt í næsta leik sem er gegn Chelsea í London í úrvalsdeildinni. bjarnih@mbl.is