Vorið 2019 Halldór, Ragnar Þór og fleiri undirrita lífskjarasamninginn.
Vorið 2019 Halldór, Ragnar Þór og fleiri undirrita lífskjarasamninginn. — Morgunblaðið/Hari
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Baksvið Baldur Arnarson baldura@mbl.is Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, hafnar því að lífskjarasamningarnir eigi þátt í auknu atvinnuleysi. Skýringarnar á því séu fjölþættari og liggi m.a. í gjaldþroti WOW air og samdrætti í ferðaþjónustu.

Baksvið

Baldur Arnarson

baldura@mbl.is

Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, hafnar því að lífskjarasamningarnir eigi þátt í auknu atvinnuleysi. Skýringarnar á því séu fjölþættari og liggi m.a. í gjaldþroti WOW air og samdrætti í ferðaþjónustu. Þeir þættir séu ótengdir samningunum.

„Það er ábyrgðarlaust að ætla að skella skuldinni á kjarasamninginn sem slíkan þegar við vitum að ástæðurnar eru allt allt aðrar,“ segir Ragnar Þór um stöðuna.

Tilefnið er samtal við Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóra SA, í Morgunblaðinu í gær um horfur í efnahagslífinu.

Taldi Halldór Benjamín vísbendingar um að náttúrulegt atvinnuleysi kynni að verða meira til frambúðar á Íslandi. Þó væri of snemmt að fullyrða nokkuð í því efni.

„Það birtist í að aðlögun að lakari efnahagsaðstæðum fari fram í gegnum raunstærðir í stað verðbólgu og gengislækkunar, sem í þessu tilviki felur í sér aukið atvinnuleysi. Bæði Samtök atvinnulífsins og Seðlabankinn vöruðu við því í aðdraganda kjarasamninga, með mjög skilmerkilegum hætti, að aðlögun hagkerfisins myndi fara fram í gegnum raunstærðir, fyrst og fremst í gegnum atvinnuleysi, og það er að ganga eftir,“ sagði Halldór Benjamín.

Fjölgaði um 3.000 milli ára

Samkvæmt tölum Vinnumálastofnunar voru um 4.600 manns að jafnaði án vinnu í nóvember 2018. WOW air sagði svo upp hundruðum starfsmanna í desember 2018 vegna endurskipulagningar félagsins.

Lífskjarasamningarnir voru undirritaðir í aprílbyrjun í fyrra, nokkrum dögum eftir fall WOW air.

Samkvæmt tölum Vinnumálastofnunar voru að jafnaði 5.962 á atvinnuleysisskrá í mars 2019. Þeir voru 7.600 í nóvember sl. en það var fjölgun um 3.000 milli ára. Ragnar Þór segir fall WOW air og samdrátt í ferðaþjónustu hafa kostað nokkur þúsund störf. Sú þróun sé óháð kjarasamningunum.

Koma til móts við fyrirtækin

„Það má færa rök fyrir því að margt í þessum lífskjarasamningi hafi komið til móts við aukinn kostnað fyrirtækja við samninginn sem slíkan. Mælingar sýna að með smávægilegum breytingum á tryggingagjaldi, kjarabótum í gegnum skattkerfisbreytingar og lægri vexti af íbúðalánum heimila og fyrirtækja, sem skulda meira en almenningur, séum við að koma til móts við atvinnulífið. Sömuleiðis ættu auknar ráðstöfunartekjur þeirra sem hafa minnst úr að spila að leiða af sér einhvers konar innspýtingu í verslun og neyslu. Sömuleiðis ætti lægri framfærslukostnaður að auka kaupgetu fólks,“ segir Ragnar Þór.

Þá hafi það markmið gengið eftir að auka ráðstöfunartekjur lágtekjufólks. Launaskrið hafi ekki gengið upp allan stigann eins og í undanförnum kjarasamningum.

„Verðbólga er að sama skapi mjög lág og þrýstingur á vaxtalækkun er meiri en hækkun, þannig að ég held að okkur hafi að mörgu leyti tekist mjög vel að verja samninginn. Ég get ekki tekið undir að hann ýti undir aukið atvinnuleysi þótt hægt sé að benda á nokkur dæmi.“

Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, taldi ekki tilefni til að bregðast við ummælum Halldórs Benjamíns. Þau væru sem véfrétt.