Þór Þorlákshöfn vann 87:70-sigur á Val í Dominos-deild karla í körfubolta á heimavelli sínum í gærkvöld. Valsmenn voru með 57:51-forystu fyrir fjórða og síðasta leikhlutann, en heimamenn sýndu allar sínar bestu hliðar í leikhlutanum.
Þór Þorlákshöfn vann 87:70-sigur á Val í Dominos-deild karla í körfubolta á heimavelli sínum í gærkvöld. Valsmenn voru með 57:51-forystu fyrir fjórða og síðasta leikhlutann, en heimamenn sýndu allar sínar bestu hliðar í leikhlutanum. Sigurinn var kærkominn hjá Þór, sem hafði tapað fjórum af síðustu fimm, en Valsmenn unnu langþráðan sigur á Fjölni í síðasta leik.
Þórsarar eru í áttunda sæti með tólf stig á meðan Valsmenn eru í tíunda sæti með átta stig.