Þúfur og hlöss. A-AV
Norður | |
♠-- | |
♥ÁG652 | |
♦92 | |
♣G86542 |
Vestur | Austur |
♠ÁK103 | ♠DG742 |
♥D8 | ♥K7 |
♦ÁKG874 | ♦D653 |
♣9 | ♣73 |
Suður | |
♠9865 | |
♥10943 | |
♦10 | |
♣ÁKD10 |
Suður spilar 5♥ dobluð.
Þetta eru spilin sem velta stigum eins og þúfur velta hlassi – bullandi fitt á báða bóga. Eftir pass í austur og suður opnar vestur á eðlilegum tígli og norður kemur inn á 2G til að sýna lægstu liti, lauf og hjarta. Austur sóknardoblar og suður á leikinn. Hvað á að gera?
Innákoman á 2G er víð (blæðandi) í punktum og suður getur ekki fullkomlega áttað sig á styrkum. Hann er því ekki í kjörstöðu til að beita pressusögn. En hvað flokkast undir „lýsandi“ sögn á þessi spil? Ekki gott að segja, en blátt áfram stökk í 4♥ reyndist vel þegar spilið kom upp í æfingaleik enska landsliðsins á BBO nýlega. Vestur sagði 4♠ og síðan 5♦ yfir 5♣ suðurs í næsta hring. Doblaði svo 5♥ (650 í NS).
Hinum megin pressaði suður með heljarstökki í 5♥, vestur sagði 5♠ og norður gerði vel í því að fórna í 6♥, einn niður.