50 ára Oddur býr í Garði og hefur alltaf átt heima þar. Hann er verkstjóri hjá Icelandair á Keflavíkurflugvelli. Oddur er gjaldkeri björgunarsveitarinnar Ægis og var formaður í 20 ár. Maki : Berglind Fanney Guðlaugsdóttir, f.
50 ára
Oddur býr í Garði og hefur alltaf átt heima þar. Hann er verkstjóri hjá Icelandair á Keflavíkurflugvelli. Oddur er gjaldkeri björgunarsveitarinnar Ægis og var formaður í 20 ár.
Maki : Berglind Fanney Guðlaugsdóttir, f. 1973, skólaliði í Gerðaskóla.
Börn : Geirdís Bára, f. 1993, Sólveig Sigrún, f. 1996, og Guðlaug Anna, f. 2004. Barnabörnin eru Berglind Sara Balos, dóttir Sólveigar, og Inga Jóna Björgvinsdóttir, dóttir Geirdísar.
Foreldrar : Jón Hjálmarsson, f. 1951, forstöðumaður íþróttamiðstöðva Suðurnesjabæjar, búsettur í Garði. og Bára Þorsteinsdóttir, f. 1949, húsmóðir í Keflavík.